Freyr - 01.01.1980, Blaðsíða 35
Frá Bændaskólanum
Bændasamtökin í landinu hafa stundum
kvartað yfir, að bændaskólarnir hefðu of lítið
samband við bændur og gerðu of lítið af að
stofna til námskeiða og fræðslufunda við
skólana og jafnvel utan þeirra, sem hentuðu
starfandi bændum, yngri og eldri, bæði til
upprifjunar á sígildum fræðum og kynningu
á nýjungum í landbúnaði almennt.
Bændaskólinn á Hólum hefur ákveðið að
bjóða bændum og bændaefnum upp á tvö
þriggja vikna námskeið frá 11. febrúar til 22.
mars 1980. Námskeiðin verða bæði bókleg
og verkleg í mörgum greinum, og skiptist
námsefnið þannig:
Kennslust. (40 mín.)
Bóklegt nám í búfjárfræði ............ 27
Bóklegt nám í jarðrækt ............... 27
Bóklegt nám í bútækni ................. 9
Bóklegt nám í búnaðarhagfræði og
félagsmálum ....................... 27
Bóklegt nám samt. 90
Verklegt nám samt. 68
eða alls á hverju námsk. 158
Um efni og tilhögun námskeiðanna vísast
að öðru leyti til hjálagðrar námsskrár.
Til leiðbeiningar fyrir væntanlega þátttak-
endur skal eftirfarandi tekið fram:
1. Kostnaður vegna dvalar er aðeins fæð-
iskostnaður, og er hann áætlaður kr.
2.500-3.000 á dag.
2. Kostnaður vegna kaupa á bókum og öðru
námsefni er áætlaður kr. 30 þúsund.
3. Efni ísmíðisgripi, bókband o. fl. reiknastá
kostnaðarverði.
4. Ritföng, pappír og möppur, svo og allar
nauðsynlegar bækur og annað námsefni
er til reiðu í skólanum.
5. Óskað er eftir, að menn taki með sér rúm-
og sængurfatnað, svo og hlífðarföt,
gúmmístlgvél og inniskó.
FREYR
23