Freyr - 01.01.1980, Síða 37
b. Þurrheysverkun.
c. Votheysverkun.
IV. Búnaðarhagfæði og félagsmál.
1. Búreikningar.
(5 kennslustundir)
a. Kynning á búreikningahaldi eins og
það fer fram á vegum Búreikningast-
ofu landbúnaðarins.
2. Skattframtai og landbúnaðarskýrsla.
(8 kennslustundir)
3. Félagsmál dreifbýlis.
(9 kennslustundir)
a. Kynnt verður félagsmálakerfi land-
búnaðarins og ýmis önnur félagsmál í
dreifbýli.
4. Ræðumennska og fundarsköp.
(5 kennslustundir)
a. Notað verður efni frá félagsmálaskóla
U.M.F.Í. og Æskulýðsráði ríkisins.
B. VERKLEGAR GREINAR.
1. Mjaltir og mjaltatækni.
(4 kennslustundir)
2. Búfjárdómar.
(4 kennslustundir)
3. Vélfræði og járnsmíðar.
(24 kennslustundir)
a. Viðhald og eftirlit dráttarvéla.
b. Rafsuða og logsuða.
c. Mælitækni og notkun og meðferð
handverkfæra.
d. Gefinn verður kostur á smíði einfaldra
hluta, sem þátttakendur geta tekið
með sér.
4. Trésmíðar.
(24 kennslustundir)
a. Notkun og meðferð helstu verkfæra og
véla við trésmíðar. Kennslan verður
fólgin í því, að hver þátttakandi smíðar
sér grip eða gripi f samráði við leiðbe-
inana.
5. Bókband.
(12 kennslustundir)
a. Þeir, sem hug hafa á að taka þátt í
bókbandi, skulu hafa með sérbækurtil
að binda inn.
Námskeiðin tvö eru sjálfstæð, en þátttak-
endum á fyrra námskeiðinu verður gefinn
kostur á að halda áfram á síðara náms-
keiðinu í verklegum greinum, sem og í bók-
legum, ef aðsókn gefur tilefni til.
Hólum í Hjaltadal, 20. nóvember 1979.
Matthías Eggertsson
Haraldur Árnason
Leiðrétting
Ölkeldu II, 6. nóv. 1979
Bréf til Freys.
Hr. ritstjóri.
í okt. bl. Freys eru greinar um búskap í Stað-
arsveit, sem ekki er nema gott um að segja.
Ein villa er þó þarna í sem ég vil biðja að
leitrétt sé í næsta blaði. Á bl. 65 er fyrirsögn
við hliðina á mynd. Þar segir:
„Börnin úr staðarsveit sækja Laugagerð-
isskóla, sem er sameiginlegurfyrir sveitirnar
á sunnanverðu nesinu o. s. frv......“
Hið rétta er: Staðarsveit rekur sinn eigin
barnaskóla og hefur gert í 70 ár.
Heitir okkar skóli Lýsuhólsskóli. Nem-
endur þess skóla eru tæplega 30 í vetur.
Unglinganámið 8. og 9. bekk er hinsvegar
rekið sameiginlega af hreppnum hér sunnan
á nesinu.
Þetta vil ég að komi skýrt fram í leiðrétt-
ingunni því hafa skal það sanna.
Þórður Gíslason
ölkeldu II í Staðarsveit.
Þórði er þakkað fyrir leiðréttinguna. Auðvit-
að hefði átt að standa með myndinni að
unglingarnir úr Staðarsveit sæktu Lauga-
gerðisskóla. — Ritstj.
FREYR
25