Freyr

Årgang

Freyr - 01.01.1980, Side 40

Freyr - 01.01.1980, Side 40
Myndin að ofan: Það er Böðvar Gíslason, bóndi Butru, sem situr til vinstri, en listamaðurinn bóndinn og endurskoðandi MBF, Jón Kristinsson t Lambey til hægri. Til hliðar: Tveir sem gleðjast, annað hvort er það yfir sigri í pólitíkinni eða góðri afkomu mjólkurframleiðanda. Hver veit? En þeir eru Steinþór Gestsson, alþingismaður á Hæli og Vífill Búason, bóndi á Ferstiklu (t. h.) starfsárið, sem var reyndar 13 mánuðir, var tekið á móti 1.2 milljónum kg. Á fyrsta aðalfundi MBF, 28. febrúar 1929, varSigurgrímur Jónsson í Holti kosinn í stað Eggerts, en að öðru leyti varstjórnin óbreytt. Egill Thorarensen var kosinn í stjórnina 1931, hann var formaður stjórnarinnar fram til ársins 1961. Árið 1947 var fjölgað um tvo í stjórninni. Sveinbjörn Högnason var for- maður, eftir að Egill féll frá, fram til ársins 1966, þá tók við formennsku Sigurgrímur í Holti og var til ársins 1972 en þá var kosinn formaður Eggert Ólafsson á Þorvaldseyri og hefur svo verið fram til þessa dags. Árið 1935 var innvegið mjólkurmagn um 3 milljónir kg, eða hámarksafköst miðað við upphaflega áætlun um afkastagetu búsins. Það var þó ekki fyrr en árið 1954, að bygg- ingarframkvæmdir hófust við nýtt mjólkur- bú, og framkvæmdum var lokið fyrri hluta ársins 1960. Árið 1943 fór innvegið mjólkur- magn yfir 10 milljónir iítra, árið 1961 yfir 30 milljónir lítra og árið 1978 yfir 40 milljónir lítra markið. Innleggjendur hafa flestir orðið rétt um 1200, en á þessu ári eru þeir 790. Frá því á árinu 1978 hefur þeim fækkað um 5. Meðalinnlegg á framleiðanda árið 1978 var 52.894 lítrar. Mjólkurframleiðendur á Suðurlandi hafa verið svo lánsamir, að til Mjólkurbús Flóa- manna hafa ráðist úrvals menn sem fram- kvæmdastjórar. Það sama má segja um stjórnarmennina, að þeir hafi alla tíð verið víðsýnir og stór- huga. Fyrstu árin voru danskir menn mjólkurbússtjórar, en síðar hafa þeir Stefán Björnsson og Grétar Símonarson verið það, en Grétar tók við framkvæmdastjórn búsins árið 1953. Það er ekki síst fyrir framtak þeirra ágætu manna, sem valist hafa í stjórn MBF, og mjólkurbússtjóra þess, sem mjólkuriðnaður á íslandi stendur ekki höllum fæti í saman- burði við mjólkuriðnað annarra þjóða, þar 28 FREYR

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.