Freyr - 15.02.1983, Page 17
Frá Dublin. Áin Liffy rennur í gegnum borgina. Myndin tekin í bændaferð 1978.
(Ljósm. A.G.).
Helgi Jóhannsson.
(Ljósm. J.J.D-Freyr).
sumir þeir sem búa utan Reykja-
víkur þyrftu að greiða einn þriðja
af farinu í innanlandsfargjöld.
- Hefur sveitafólk notfært sér
þjónustu ykkar?
- Já, bændur hafa ferðast mikið á
vegum okkar. Stundum hefur fólk
í einstöku sveitum farið í hópferð
og höfum við skipulagt ferðina á
allan hátt, einnig ferðir, sem Bún-
aðarfélag íslands hefur staðið
fyrir. Langvinsælustu ferðirnar
eru til Norðurlanda.
Okkur berast beiðnir frá ýms-
um erlendum bændasamtökum
um að skipuleggja ferðir um Is-
land. Flugvélarnar sem flytja
þessa hópa hingað fara oft tómar
til baka, því flugfarþega héðan
vantar á móti. Við reynum að
nota þessar flugvélar eins vel og
kostur er og skipuleggjum ferðir
fyrir sveitafólk í samvinnu við
Agnar Guðnason blaðafulltrúa
eða efnum til þeirra sjálfir. Með
því að nýta flugvélarnar á leiðinni
til baka fyrir íslenska farþega er
hægt að lækka fargjaldið t. d. til
Þrándheims og Tromsö í Noregi
og Luleá í Svíþjóð. Koma þá nor-
Bœndaferð var farin um Norðurlönd sumarið 1967. Myndin er tekin í heimsókn á bóndabæ á Fjóni.
(Ljósm. A. G.).
FREYR — 137