Freyr - 01.08.1991, Side 7
15.-16.’91
FREYR 571
—
111« b \ I 1 I 1 Km 11«
Lög og reglugerðir
um búfjárhald
Á síðasta Alþingi voru samþykkt lög um
búfjárhald, nr. 46/1991. í 1. gr. laganna
segir að lögin skuli tryggja svo sem föng
eru á góða meðferð og aðbúnað búfjár og
að við framleiðslu búfjárafurða sé ein-
göngu notað hraust og heilbrigt búfé.
I 7. grein laganna segir m.a: „Landbún-
aðarráðherra er rétt að gefa út reglugerðir
fyrir einstakar búfjártegundir þar sem
nánar er kveðið á um atriði er lúta að
aðbúnaði og meðferð gripa, gripahúsa,
þar með talin ákvæði um innréttingar,
rýmisþörf gripa, loftræstingu, birtu í húsi,
fóðurgeymslur og fóðurútbúnað, svo og
ákvæði um umhirðu gripa og eftirlit,
skráningu á vanhöldum og heilbrigði
búfjár og eftirlit með gripum sem ganga úti
hluta ársins. Jafnframt er í reglugerð
heimilt að kveða á um kröfur til reynslu og
þekkingar þeirra sem búfé halda eða
hirða.“
I 8. grein segir: „Landbúnaðarráðu-
neytið skal beita sér fyrir því í samvinnu
við Búnaðarfélag íslands, viðkomandi bú-
greinafélag, yfirdýralækni og dýravernd-
arnefnd að fyrir hverja búfjártegund verði
gefnar út leiðbeinandi reglur um sem
flesta þætti er lúta að fóðrun. aðbúnaði,
meðferð og heilbrigði búfjár af viðkom-
andi tegund. Tryggt skal að slíkar reglur
séu endurskoðaðar reglulega í samræmi
við bestu þekkingu á hverjum tíma.“
í framhaldi af því sem hér hefur verið
rakið hefur landbúnaðarráðherra gefið út
tvær reglugerðir við þessi lög. Önnur er
reglugerð nr. 219/1991 um aðbúnað og
heilbrigðiseftirlit á svínabúum og hin er
reglugerð nr. 263/1991 um loðkanínurækt.
í þesum reglugerðum er leitast við að
framfylgja þeim greinum í lögum um
búfjárhald sem vitnað er í hér að framan.
Athygli hefur vakið að útkoma beggja
þessara reglugerða hefur orðið tilefni uin-
ræðna í fjölmiðlum. DV birti gamanmál á
kostnað hennar sem Steingrímur J. Sigfús-
son fyrrv. landbúnaðarráðherra svaraði og
teiknaranum Sigmund varð tilefni að
mynd í Morgunblaðinu.
Síðari reglugerðinni, um loðkanínu-
rækt, varð Guðmundi Einarssyni, aðstoð-
armanni Jóns Sigurðssonar, iðnaðarráð-
herra, að umræðuefni í þætti undir stjórn
Páls Heiðars Jónssonar á laugardags-
morgni í Ríkisútvarpinu, rás 1, hinn 6. júlí
sl. Þar hæddist hann óspart að ýmsum
fyrirmælum reglugerðarinnar og fannst
um ofstjórn að ræða, en þar var verið að
mæla fyrir um framkvæmd áðurgreindra
laga um búfjárhald, sem ríkisstjórn, þar
sem Alþýðuflokkurinn átti aðild, beitti sér
fyrir að setja.
Það hefur löngum verið notað sem
mælikvarði á mannlegt samfélag hvað gert
sé fyrir þá sem minni máttar eru og hafa
ekki sjálfir tök á að verja hlut sinn. Pað á
jafnt við um menn og málleysingja. Varð-
andi meðferð á málleysingjum, þ.e. búfé,
hefur til skamms tíma einkum skort á að
því hafi verið séð fyrir tryggu vetrarfóðri
og miðuðust lagafyrirmæli við að stuðla að
því og bæta úr ef misbrestur varð á.
Frh. á bls. 600.