Freyr - 01.08.1991, Blaðsíða 9
15.-16.’91
FREYR 573
Ferðaþjónusta er fjölbreytt og
lifandi starf
Viðtal við Sólveigu Sigurðardóttur ferðaþjónustubónda ó Höfðabrekku
í Mýrdal.
Sólveig Sigurðardóftir býr á Höfðabrekku í Mýrdal ásamt manni sínum, Jóhannesi
Kristjánssyni formanni Landssamtaka sauðfjárbœnda, og þremur sonum þeirra, Kristjáni
7 7 ára, Björgvin 7 3 ára og Ingvari 9 ára. Nýlega var fréttamaður Freys þar á ferð og tók
Sólveigu tali og bað hana fyrst að segja á sér deili.
Ég er fædd og uppalin í Hafnar-
firði. Faðir minn, Sigurður
Arnórsson, bjó að Ási í Hafnar-
firði og rak þar fjárbú. Við Jóhann-
es keyptum þessa jörð, Höfða-
brekku, fyrir rúmum 14 árum og
lögðum fyrir okkur sauðfjárbú-
skap eins og hafði verið hjá fyrri
eigenda og reistum ný fjárhús og
vélageymslu.
Fjárbúið stækkaði og við vorum
komin með á 7. hundrað fjár á
vetrarfóðrum á tímabili. Fullvirð-
isrétturinn var hins vegar verulega
minni og ekki tókst að fá leigðan
viðbótarrétt þannig að við brugð-
um á það ráð að leigja réttinn
okkar til þriggja ára en héldum
eftir 50 ærgildum.
Og þá hafið þið farið úr í
ferðaþjónustu?
Já, við notuðum leigupeningana til
að byggja upp ferðaþjónustu hér á
bændum. Hér var fyrir nýlegt íbúð-
arhús á einni hæð þegar við fluttum
hingað, en fjölskylda okkar fór
stækkandi og þá var ákveðið að
byggja ofan á það. Við byrjuðum
þannig í ferðaþjónustunni með tvö
herbergi inni hjá okkur til að fá
reynslu af því hvernig væri að vera
með ókunnugt fólk inni á sér. Þetta
var árið 1988.
Sólveig Sigurðardóttir.
Þetta vatt svo upp á sig?
Já, árið 1989 byggðum við 100
fermetra gistiskála hér við bæinn
með fimm tveggja manna her-
bergjum og sameiginlegri setu-
stofu og eldhúsi fyrir gesti. Það tók
ekki nema tvo mánuði frá því að
byrjað var að reisa þar til fyrstu
gestirnir sváfu í húsinu.
Svo aftur á þessu ári, nánar til-
tekið 12. janúar, þá grófum við
fyrir 250 fermetra húsi og fyrstu
gestirnir sváfu í því 1. júní. Það
tekur 24, það er með 12 tveggja-
mannaherbergjum og með sér-
snyrtingu fyrir hvert herbergi
ásamt sturtu.
Þarna hafið þið byggt mikið upp
á stuttum tíma. Hefur þetta ekki
verið erf itt fjárhagslega?
Jú, auðvitað er það þungt en
kannski mest vinnuálagið. Við
unnum nánast 17-18 tíma á sólar-
hringi þennan tíma meðan húsið
var í byggingu. Ég hef unnið þar
við nánast hvað sem er; setja í
glugga, verið í múrverki o.s.frv.
Hver er svo reynsla þín af
samskiptum við ferðamenn?
Hún er mjög góð. Ég hefði aldrei
farið út í þetta ef ég hefði ekki
kunnað við það. Ég held að það sé
ekki hægt að hugsa sér líflegri og
skemmtilegri vinnu en að vera
alltaf að hitta nýtt fólk og fræðast
af því og greiða götu þess. Það er
mikið um það að maður vísi því
áfram til næsta áfangastaðar og
panti þar gistingu fyrir það.
Hvaðeraðalannatíminná
hverju ári langur?
í júlí og ágúst er full nýting og í júní
og september er reytingur. Við
höfum svo opið allt árið og þannig
hefur náðst inn rekstrarkostnaður,