Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1991, Blaðsíða 37

Freyr - 01.08.1991, Blaðsíða 37
NÝTTNAFN ■ NÝTTÚTUT ■ NÝTTNAFN ■ NÝTTÚTLIT ■ NÝTTNAFN ■ NÝ'ITÚTLIT Nýmjólk ínýjum ham... GMJÓLK Fæst einnig í 1 lítra fernum. G-mjólkin geymist mánuðum saman, utan kælis, sem kemur sér vel þegar langt er í næstu búð. Vel kæld bragðast hún sem besta nýmjólk og þegar Cappuccino-kaffi er annars vegar hentar engin mjólk betur. Leggðu nýja útlitið á minnið. G-MJÓLK ■ GEYMSLUÞOLIN MJÓLK ■ G-MJÓLK • GEYMSLÚÞOLIN MJÓLK • G-MJÓLK Rœktunarland á jörðinni minnkar Vísindamenn hafa tekið við þar sem boðendur elds og brennisteins voru áður að verki. Það hallar und- an, hratt eða hægt, ef ekki verður tekin upp ný stefna. Með óbreyttri þróun munu að 40 árum liðnum: ★ 960 milljarðar tonna af jarð- vegi hafa skolast eða fokið burt. ★ 440 milljón hektarar af skógi hafa eyðst. ★ Jarðbúar verða um 8 milljarð- ar, en þeir eru 5 milljarðar um þessar mundir. Þessar upplýsingar eru úr skýrslum sem stofnunin Worldwatch Institute gefur út og dreifir til opinberra aðila um allan heim. í flestum iðnaðarlöndum eru það vandamál við offramleiðslu sem ber hæst í málefnum landbún- aðarins. Þó er því þannig farið að óhagstætt veðurfar eitt ár í stærstu matvælaframleiðslulöndunum get- ur snúið offramleiðslunni í skort. Birgðir matvæla samsvara tveggja mánaða neyslu og að áliti Mat- vælastofnunar Sameinuðu þjóð- anna er það við hættumörk. Að áliti Worldwatch Institute eru 10 ár til stefnu að snúa þessari þróun við. Frá 1960 til þessa hefur jarðbúum fjölgað úr 3 í 5 milljarða. Á sama tíma tvöfaldaðist korn- framleiðsla í heiminum. Jarðbúum fjölgar um u.þ.b. 90 milljónir á ári en á árunum 1984 -1989 jókst árleg kornframleiðsla aðeins um 1%. Matvælaframleiðsla í framtíð- inni byggist á því að henni sé sem mest dreift um jörðina þannig að áhætta vegna uppskerubrests dreifist. Það er ekki stefna stjórn- málamanna um þessar mundir, en hún verður tekin upp þegar núver- andi stefna hefur runnið sitt skeið á enda ög augu manna opnast fyrir því að með því að skaða náttúruna valda þeir skaða á sjálfum sér.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.