Freyr - 01.08.1991, Blaðsíða 35
15.-16.’91
FREYR 599
an M.S. prófi árið 1986 og Ph.D.
prófi, (doktorsprófi), í september
1990. Doktorsverkefni hans fjall-
aði um vistfræði bleikju í Þing-
vallavatni.
Jón Baldur Lorange var ráðinn
umsjónarmaður tölvumála hjá
Búnaðarfélagi íslands frá 15. maí
sl.
Jón Baldur er Reykvíkingur,
fæddur árið 1964. Hann starfaði
sem skrifstofustjóri Islensku
hljómsveitarinnar árin 1984-1986
og var framkvæmdastjóri Alþýðu-
flokksins 1986-1987, auk þess sem
hann kenndi tölvufræði í efstu
bekkjum grunnskóla.
Jón Baldur er stúdent frá Versl-
unarskóla íslands árið 1989 og út-
skrifaðist sem kerfisfræðingur frá
Tölvuháskóla VÍ í maí 1991.
Kona hans er Steinunn Georgs-
dóttir, hjúkrunarfræðingur, frá
Reykjavík.
Brynja Hjálmtýsdóttir hefur
verið ráðinn í nýtt starf sem er á
vegum Sambands garðyrkjubænda
að hálfu og Búnaðarsambands
Suðurlands að hálfu, frá 1. júní sl.
Á vegum Sambands garðyrkju-
bænda vinnur hún við að gæta
hagsmuna félagsmanna þess en á
vegum BSS vinnur hún fyrir garð-
yrkjubændur á svæði sambandsins
við bændabókhald o.fl.
Brynja er frá Selfossi. Hún lauk
stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla
Suðurlands á Selfossi árið 1984 og
námi í viðskiptafræði frá Háskóla
íslands árið 1991.
Sambýlismaður Brynju er Ingi-
mundur Sigurmundsson frá Laug-
ardælum í Hraungerðishreppi,
skrifstofustjóri hjá Búnaðarbanka
íslands á Selfossi.
Bœndabókhald
Búnaðarsamband Austur-Skaftafellssýslu óskar að
ráða starfsmann/ráðunaut til starfa við bœnda-
bókhald.
Upplýsingar veita Örn Bergsson í síma 97-81674 og
Jón Finnur Hansson í síma 97-81012.
Þórarinn Lárusson var ráðinn
héraðsráðunautur hjá Búnaðar-
sambandi Austurlands frá 1. júní
sl. og gildir ráðningin til áramóta
nk. Verkefni hans verða á sviði
fiskeldis auk almennra ráðunauta-
starfa.
Þórarinn var áður tilraunastjóri
við Tilraunastöðina á Skriðu-
klaustri en starfsemi stöðvarinnar
hefur nú verið lögð niður.
Jón Bjarnason skólastjóri við
Bændaskólann á Hólum hefur
fengið ársleyfi frá störfum. Hann
mun á næsta vetri stunda nám við
Landbúnaðarháskólann í Edin-
borg í Skotlandi þar sem hann mun
kynna sér framkvæmd og skipu-
lagningu starfsmenntunar í Skot-
landi í landbúnaði og úrvinnslu-
greinum hans.