Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1991, Blaðsíða 34

Freyr - 01.08.1991, Blaðsíða 34
598 FREYR 15.-16.’91 Stefán Örn Valdimarsson hefur verið ráðinn starfsmaður Hagþjón- ustu landbúnaðarins á Hvanneyri frá 1. júlí sl. Stefán er Reykvíkingur. Hann er búfræðingur frá Bændaskólan- um á Hvanneyri árið 1983 og fisk- eldisfræðingur frá Bændaskólan- um á Hólum árið 1986. Árið 1988 hóf hann nám við Samvinnuskól- ann á Bifröst og lauk þaðan prófi sem rekstrarfræðingur árið 1991. Ævarr Hjartarson hefur verið ráðinn starfsmaður Hagþjónustu landbúnaðarins í hálft starf um einsárs skeiðfrá 1. júlísl. Verkefni hans verður að kanna vinnumagn við ýmsa þætti búrekstrar. Ævarr mun áfram gegna starfi héraðsráðunautar hjá Búnaðar- sambandi Eyjafjarðar þar sem verkefni hans er einkum bænda- bókhald. Aðsetur hans verður á Akureyri. Guðbjörn Árnason hefur verið ráðinn tölfræði- og áætlanafulltrúi hjá Framleiðsluráði landbúnaðar- ins frá 1. júlí sl. Hann á m.a. að veita bændum upplýsingar um ástand og horfur í búvörufram- leiðslu og um framleiðsluréttar- mál. Guðbjörn var áður hagfræð- ingur hjá Stéttarsambandi bænda í fjarveru Gunnlaugs A. Júlíusson- ar. Frá 1. júlí lét jafnframt Árni Jónasson af störfum hjá Fram- leiðsluráði, en síðustu ár hefur hann verið í hlutastarfi og m.a. svarað fyrirspurnum um fullvirðis- rétt. Sveinbjörn Eyjólfsson hefur ver- ið settur skólastjóri við Bænda- skólann á Hólum skólaárið 1991-1992, í leyfi Jóns Bjarnason- ar skólastjóra. Sveinbjörn er deildarstjóri í landbúnaðarráðuneytinu og er í leyfi frá því starfi í sama tíma. Sigurgeir Þorgeirsson var í maí sl. ráðinn aðstoðarmaður Halldórs Blöndal, landbúnaðarráðherra. Sigurgeir er sérfræðingur í bú- fjárrækt við Rala og sauðfjár- ræktarráðunautur hjá Búnaðarfé- lagi íslands og hefur leyfi frá þeim störfum meðan hann gegnir starfi aðstoðarmanns landbúnaðarráð- herra. Skúli Skúlason var ráðinn sér- fræðingur í fiskalíffræði við Bændaskólann á Hólum í október 1990. Að ráðningu Skúla standa einnig Veiðimálastofnun, útibú á Hólum, og Hólalax hf. en Skúla er ætlað að stunda rannsóknir í fisk- eldi og fiskrækt, auk þess sem hann kennir við fiskeldisbraut Bænda- skólans. Skúli er frá Akureyri. Hann er stúdent frá MA árið 1978 og lauk B.S. prófi í líffræði frá HI árið 1981. Eftir það stundaði hann nám við Háskólann í Guelph í Ontario í Kanada í fiskalíffræði og lauk það-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.