Freyr

Volume

Freyr - 01.08.1991, Page 11

Freyr - 01.08.1991, Page 11
15.-16.’91 FREYR 575 sjó með fólk sem er óvant og veitt fræðsla um umhverfið þarna niður- frá. Svo aftur ef það er vant fólk sem vill fara lengra þá er riðið inn dal- inn og upp á Höfðabrekku og nið- ur hjá Múlakvísl og hér vesturum. Ég sé svo að það eru hér tjarnir rétthjá bœnum. Já, við létum ýta upp görðum þannig að það mynduðust hér þrjár tjarnir eða lón. Við slepptum fiski í þetta og það er mjög vinsælt að fá að veiða þarna. Núna veiðast þar bleikjur sem eru rúmlega tveggja punda og svo slepptum við líka laxi í lónin og þeir eru sérstakir happ- drættisvinningar og gera mikla lukku þegar þeir veiðast. Við feng- um fiskinn í seiðauppeldisstöð hér í Vík. Fleira? Já, það er búið að merkja hér gönguleiðir. Það var fólk í Vík sem tók að sér að merkja þær. Svo er verið að koma upp golfvelli íVík. Já, hann var vígður 17. júní sl. Það er mjög þarft framtak til að fá fólk til að halda hér kyrru fyrir nokkurn tíma. Núna sér maður eldri menn vera að draga kerrur með kylfum á Hestarnir á Höfðabrekku. Mér virðist þú hafa nokkuð mikið á þinni könnur. Hvernig gengur þér að komastyfir þetta? Þetta er auðvitað alltof umfangs- mikið fyrir eina manneskju. Varð- andi þrif þá hef ég fengið konur Sólveig og Jóhannes á Höfðabrekku ásamt tveimur sona sinna, þeim Kristjáni t. v. og Ingvari. eftir sér um götur Víkurkauptúns. Svo var byrjað með upplýsinga- miðstöð í Vík í vor fyrir ferða- menn. Hefur þú áhyggjur af að uppbygging ferðaþjónustunnar hér um slóðir verði meiri en markaðurinn leyfir? Sú hætta er auðvitað fyrir hendi. Hins vegar tel ég ekki einsýnt að það fari þannig hér um slóðir. Ég held að fólk átti sig á því að það kostar mikla fjármuni og fyrirhöfn að byggja svona þjónustu upp og fólk verður að hafa eitthvað annað með til að hafa fyrir stafni og lifa af. í þessari þjónustu er ekkert sem tryggir það að það komi ferða- menn. Það getur svo margt gerst sem dregur úr ferðum fólks, verk- föll, stríð úti um heim, minni fjárráð fólks o.fl. í þessari starf- semi gildir það að gera sér grein fyrir að það er verið að taka áhættu. Það réð miklu um ákvörðun okkar að fjölskyldan er öll ánægð hérna. Elsti sonurinn er í skóla í Reykjavík á veturna og hann vill koma aftur og starfa hér. Við höf- um því velt því fyrir okkað að við foreldrarnir tökum að okkur ferðaþjónustuna en hann fjárbúið.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.