Freyr - 01.08.1991, Blaðsíða 13
•TTt>T fréttapunktar
V—J X X—/ '91* UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL •
Stéttarsamband bænda hefurákveðið
að leggja fram sameiginlega kxöfu í
*
þrotabú Alafoss fyrir hönd þeirra ullarframleið-
enda sem hlut eiga að máli. S.B. þarf því að fá
formlegt umboð frá umboðsmönnum Álafoss
eða þeim framleiðendum sem lögðu ullina inn
beint, þar sem fram kemur fjárhæð, umsamin
greiðsludagsetning og samþykki viðkomandi
framleiðenda fyrir því að Stéttarsambandið
fari með kröfugerðina. Samkvæmt lögffæði-
legu áliti nær kröfugerðin aðeins til þeirrar
ullar sem hafði verið metin fyrir gjaldþrot.
Ometin ull telst m.ö.o. eign framleiðenda.
Miklar umræður hafa verið í Danmörku
að undanfömu um stórfelld uppkaup
Þjóðverja á jarðnæði þar í landi, aðallega
sumarbústaðalandi á Vestur-Jótíandi. Steininn
tók þó úr, að margra mati, þegar danski
kaupsýslumaðurinn og stórjarðeigandinn
Grevenkop-Castenskiold auglýsti nýlega til
sölu 1.300 hektara lands á Vestur- og Mið-
Jótlandi í einu vinsælasta frístundaveiði-
blaðinuíEvrópu "WildundHund". Þarbýður
hann m.a. til sölu eitt helsta varpland gæsa á
Norðurlöndum og eftirsótt veiðisvæði, sem
staðið hefur til að friða að frumkvæði um-
hverfisvemdarsinna. Dönsk blöð spyrja nú
hvort hleypa eigi skotglöðum Þjóðverjum í
þessa náttúmparadís undir stríðsfyrirsögnum
á borð við "Danmörk til sölu". Háværar
kröfur em uppi um að dönsk stjómvöld neyti
forkaupsréttar en þar sem frést hefur að jarð-
eigandinn selji fyrir ekki minna en tíu stafa
tölu er talið ólíklegt að svo verði.
Allt stefnir nú í sölumet hjá Félagi Hrossa-
bænda á Japansmarkaði í haust og svo
gæti jafnvel farið að skortur verði á kjöti til
útflutnings. Að sögn Halldórs Gunnarssonar
hjáF.H. verðurflutt útábilinu 100 til 150 tonn
af fitusprengdu pistólukjöti til Japans, sem er
allt að því helmingi meira en í fyrra. Samfara
aukinni eftirspum hefur verð á hrossakjöti
hækkað á Japansmarkaði. Útflutningurinn mun
því í fyrsta sinn skila, án útflutningsbóta, fullu
verði til bænda, eða rúmum 96 kr/kg auk þess
að greiða flugfrakt um 180 kr/kg, sláturkostnað
og annan kostnað. Þetta verða að teljast
sérstaklega góð tíðindi fyrir hrossabændur þar
sem útflutningur til Japans minnkaði milli ár-
anna 1989 og 1990, fór úr tæpum 80 tonnum í
70 tonn. Með aukinni eftirspum hefur sú hætta
myndast að það vanti kjöt fyrir þennan út-
flutning. Halldór Gunnarsson segir að slátra
verði 1000 til 1500 hrossum í haust. Þá setji
Japanamir sem skilyrði að kjötið sé, auk þess
að vera feitt, af fimm vetra eða eldri gripum.
Félagið hvetur því alla sem hafa hug á að grípa
þetta tækifæri til þess að hafa samband við F.H.
eða sláturleyfishafa sem allra fyrst.
RALA OG LTSTIN
RALA hefur með stuðningi Listskreyt-
ingasjóðs ríkisins fengið myndlista-
manninn Gunnstein Gíslason til að gera 9 m2
veggskreytingu í anddyri stofnunarinnar.
Verkið er svonefnd múrrista og nefnist hún
"Lífsþræðir". Þar er á táknrænan hátt lýst
hvernig nýkviknað líf brýtur sér leið upp úr
moldinni og breiðir úr sér. Er það samdóma álit
manna að hér hafi verið vel að verki staðið.
Upplýsingaþjónusta landbúnaðarins • Bændahöllinni v/Hagatorg • 107 RVK • Sími 20025/620025 • Fax 628290