Freyr - 01.08.1991, Síða 14
578 FREYR
15.-16.’91
Golfvöllur f Vík f Mýrdal
Viðtal við Paul Richardson
Paul Richardson ferðaþjónustubóndi á Eystra-Skagnesi í Mýrdal og framkvœmdastjóri
Ferðaþjónustu bœnda hefur komið upp golfvelli í Vík í Mýrdal, í jaðri kauptúnsins.
Fréttamaður Freys leitaði fregna hjá honum afþessu framtaki.
Teigur á golfvellinum i Vík í Mýrdal, uppi við Reynisfjall. Teigurinn er gamall
kartöflugarður, sem að stœrð og staðsetningu er sniðinn fyrir golfteig. Á
myndinni eru t. v. Benedikt Sigurbjörnsson átaksverkefnisstjári og Arnaldur
M. Bjarnason atvinnumálafulltrúi. (Ljósm. M.E.)
Hvernig varð þessi hugmynd til?
Þessi hugmynd varð til í framhaldi
af því að ég hef orðið var við mjög
vaxandi áhuga á golfíþróttinni
bæði hér á landi og erlendis. Menn
víla jafnvel ekki fyrir sér að fara til
útlanda til að stunda golf.
A hinn bóginn starfa ég við
ferðaþjónustu og þar er eitt hið
mikilvægasta að iengja ferða-
mannatímann. Við höfum rnikinn
annatíma yfir hásumarið, e.t.v. í
þrjá mánuði, en utan þess er lítið
að gera.
Mér finnst golfíþróttin vera ein
af þessum leiðum til að lengja nýt-
ingartímann, auk þess sem golf
fellur vel að öllum aðstæðum hér á
landi.
Vík í Mýrdal er e.t.v. sérstaklega
kjörin í þessu skyni?
Já, það er margt sem mælir með
þessum stað, m.a. er staðurinn til-
tölulega stutt frá Reykjavík, sem
er aðalmarkaðssvæðið. Það er
sandur undir vallarsvæðinu en
undir fyrstu golfvöllunum var
einmitt sandur. Það var í Skotlandi
þar sem vagga íþróttarinnar stóð.
í Vík fer frost fljótt úr jörðu ef
jörð frýs þá yfirleitt. Völlurinn
verður tilbúinn fyrr á vorin en víð-
ast hvar annars staðar á landinu og
unnt að nota hann lengur fram á
haust og vetur.
Auk þess má geta þess að þarna
er mikil náttúrufegurð og það
skiptir líka máli.
Hefur þetta verið dýr
framkvœmd?
Það getur verið álitamál, hvað er
dýrt. Hins vegar þarf að hafa þarna
alldýrar sérhæfðar vélar, sem verð-
ur að útvega, eina til að slá flatirnir
og aðra til að slá brautirnar.
Svo er kostnaður við að þekja og
ganga frá brautunum og við merk-
ingar. Landgræðsla ríkisins hefur
haft umsjón með þessu landi og
hefur séð um uppgræðslu þarna.
Hvar eru svo þessi mál stödd nú í
júlí?
Það er ýmsu ólokið. Hins vegar var
formleg opnun 17. júní sl. þar sem
oddviti Mýrdalshrepps, Guð-
mundur Elíasson, sló fyrsta högg-
ið. Þarna var þá fjöldi fólks og góð
stemning. Núna leyfum við fólki
að fara um völlinn og leika golf til
að kynnast honum, en við tökum
ekki gjald ennþá.
Ertu farinn að huga að
markaðssetningu vallarins?
Áður en það er gert í alvöru þarf að
mæla völlinn út af fagmönnum og
fá hann viðurkenndan eftir alþjóð-
legum staðli. Auk almennrar út-
leigu gefa golfmót töluverðar tekj-
ur og ég vonast til að þarna verði
haldið golfmót í haust.
Ég held að það sé ekkert erfitt
að kynna völlinn. Golfáhugamenn