Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.1991, Qupperneq 26

Freyr - 01.08.1991, Qupperneq 26
590 FREYR 15.-16.’91 vöðvum í bógi og baki sem hættast er við kæliherpingu. 3. Nota rafmagnsörvun sem hraðar efnaskiptum í vöðvunum og flýtir fyrir dauðastirðnun. Hér á landi hefur verið reynt að gæta þess að kæla kjötið hægt til þess að koma í veg fyrir kæliherp- ingu. Að hengja skrokkana upp á mjaðmagrindarbeininu hefur þann ókost að skrokkarnir taka of mikið pláss í geymslu, og lögun læranna verður óheppileg við brytjun kjöts- ins. Þessi aðferð hefur því aldrei náð verulegri útbreiðslu. Raf- magnsörvun hefur verið mikið not- uð aðferð víða um heim en sérstak- lega þó á Nýja-Sjálandi. Þessi að- ferð er þó dýr í stofnkostnaði og tekur auk þess það mikið pláss, að í flestum tilfellum er ekki hægt að koma búnaðinum fyrir, nema slát- urhúsin séu sérstaklega hönnuð með þetta fyrir augum. Meyrnun. Til þess að auka gæði kjöts er það venjulega látið hanga (meyrna) í einhvern tíma við kæli- hitastig. Á þeim tíma verka efna- hvatar í vöðvafrumunum og brjóta niður viss tengsl í þeim þannig að dauðastirðnun hverfur. Hraði meyrnunar er háður tegund kjöts og hitastigi eins og sjá má af töflu 2. Til þess að ná 80% af mögulegri meyrnun þarf dilkakjöt því að hanga í 7 daga við +2°C. Samsvar- andi meyrnun fyrir nautakjöt er 10 dagar við sama hitastig. Dilkakjöt nær viðunandi meyrnun á þremur dögum við +2°C. Kjöt sem orðið hefur fyrir herp- ingu meyrnar lítið sem ekki. Þannig verður t.d. kæliherpt dilka- kjöt aldrei meyrt þó það sé látið hanga. Gallinn verður varanlegur. Þegar kjöt er fryst stöðvast meyrnun þess en heldur áfram eftir að það hefur verið þítt aftur, en hvernig og hversu hratt það meyrnar eftir frystingu er ekki eins mikið rannsakað og meyrnun á fersku kjöti. Matvœlarannsóknastofnunin í Bristol. (Myndir tók Rögnv. Ingólfsson). Seigjumœlir í Matvœlarannsóknastofnuninni í Bristol. koma í veg fyrir kæliherpingu í dilkakjöti með eftirtöldum aðferð- um: 1. Kæla kjötið hægt þannig að hitastig kjötsins fari ekki niður fyr- ir 10°C fyrr en 10 klst. eru liðnar frá slátrun. 2. Hengja skrokkana upp á mjaðmagrindarbeininu og bóg- binda ekki. Þetta teygir á þeim Tafla 2. Meyrnun kjöts af nokkrum dýrategundum við 1 -4 C. Tegund Dagar til 50% meyrnunar Dagartil80% meyrnunar Nautakjöt...................................... 4.3 10.0 Dilkakjöt...................................... 3.3 7.7 Svínakjöt...................................... 1.8 4.2 Hænsnakjöt..................................... 0.1 0.3

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.