Freyr - 01.08.1991, Page 28
592 FREYR
15.-16.’91
Nokkrir lambsskrokkar sem notaðir voru í tilraununum. Eyrun hanga við
skrokkana þangað til eftirlitsmaður EB hefur staðfest niðurgreiðslur á kjötið.
staðlaða meðferð á kjöti fyrir fryst-
ingu. Þannig er ekki vitað hve lengi
uppþítt kjöt þarf að meyrna til að
ná viðunandi gæðum. Einnig getur
verið nokkur hætta á kæliherpingu
kjöts. Þetta getur gerst þegar mjög
kalt er í veðri þannig að kæling
verður of hröð og þegar kæli-
geymslur sláturhúsanna rúma ekki
dagsslátrun þannig að fryst er of
fljótt eftir slátrun. Úr þessu er þó
hægt að bæta með nægilega stórum
kæligeymslum með stillanlegu
hita- og rakastigi. Með staðlaðri
meðferð kjötsins fyrir frystingu
væri hægt að gefa nákvæmar leið-
beiningar um meðferð þess eftir
uppþíðingu.
Markaðssetning á þíddu kjöti.
Margar verslanir eru með þítt
dilkakjöt í kjötborðum sínum. Oft
hefur þetta kjöt auðsjáanlega verið
sagað niður áður en það hefur ver-
ið þítt. Það er því stundum ekki
girnilegt á að líta, þar sem að oft
liggur það í blóðvökva og einnig
sést á því kjötsag. Uppþítt kjöt sem
búið væri að láta meyrna í heilum
skrokkum mætti hluta á hefðbund-
inn hátt og pakka í hentugar um-
búðir til sölu. Það er mikilvægt,
bæði fyrir framleiðendur og neyt-
endur, að hér sé á markaði allt árið
dilkakjöt, sem er girnilegt á að líta,
hefur full gæði bæði hvað varðar
mýkt og bragð og er tilbúið til
matreiðslu.
Rögnvaldur Ingólfsson er héraðsdýra-
lœknir í Búðardal. Hann lauk M.S.-prófi
í Meat Science við Háskólann í Bristol í
Engtandi í janúar sl. Lokaritgerð hans
fjallaði um áhrif rafmagnsörvunar og
fyrstingar á meyrnun kjöts.
Fréttir frá Stéttarsambandi
bænda.
Frh. afbls593.
stjórn náttúruvísindadeildar Vís-
indasjóðs. Samþykkt að tilnefna
Hákon Sigurgrímsson, frkv.stjóra.
Sveitaheimsóknir skólabarna.
Lögð var fram umsókn frá Upplýs-
ingaþjónustu landbúnaðarins um
50 þús. kr. framlag til að standa
straum af kostnaði við sveitaheim-
sóknir skólabarna. Gert er ráð fyr-
ir hliðstæðu framlagi frá öðrum
aðildarfélum Upplýsingaþjónust-
unnar.
Róðstefna um mataröryggi og
umhverfismál.
Lögð var fram dagskrá sem Al-
þjóðasamband búvöruframleið-
enda, IFAP, mun halda hér á landi
dagana 16.-18. október nk. Yfir-
skrift ráðstefnunnar er: „Matarör-
yggi og umhverfismál - landbúnað-
ur í lykilhlutverki".
Ráðstefnan er haldin með til-
styrk íslensku ríkisstjórnarinnar en
Islandsdeild Norrænu bændasam-
takanna, NBC, hefur að mestu
annast undirbúning hér á landi.
Gert er ráð fyrir 120-150 erlendum
þátttakendum.
Ráðstefna þessi er hugsuð sem
liður í undirbúningi að mikilli um-
hverfisráðstefnu sem Sameinuðu
þjóðirnar hafa boðið til í Brasilíu á
næsta ári.
Málefni ullariðnaðarins.
Kynnt var að viðskiptaráðherra
óski eftir tilnefningu í nefnd sem
ætlað er að fjalla um þá starfsemi
sem Álafoss hf. hafði með hönd-
um, m.a. ullarþvott og bandspuna.
Ákveðið var að tilnefna Gunnlaug
A. Júlíusson íþá nefnd af hálfu SB.
Jafnframt óskar landbúnaðar-
ráðherra eftir tilnefningu í nefnd
sem ætlað er að fjalla um ullar-
framleiðslu á breiðum grundvelli.
Ákveðið var að tilnefna Þórarin
Þorvaldsson í þá nefnd af hálfu SB.
Atvinnuleysi í
Efnahagsbandalaginu
Á fyrrihluta ársins 1991 var at-
vinnuleysi í löndum Efnahags-
bandalagsins að meðaltali 8,5%.
Mest var atvinnuleysið í írlandi,
rúm 16%, og á Spáni tæp 16%. í
Bretlandi var atvinnuleysið þá
7,8%.
(Bonde og smábruker, 8. júní
1991.)