Freyr

Volume

Freyr - 01.11.1993, Page 13

Freyr - 01.11.1993, Page 13
21.’93 FREYR 769 köfnunarefni og fosfór sem valda ofauðguninni. Ofauðgun getur orðið af mörg- um ástæðum, svo sem: * Næringarefni berast með jarð- vegi sem losnað hefur vegna jarðvegseyðingar. * Útskolun áburðar. * Frárennsli frá salernum. * Skólp með matarleifum og fosfórauðugum þvottaefnum. í töflu 1 er reiknað út hve mik- ill áburður fer á ræktað land á íslandi. Dreginn er frá áburður sem fór til landgræðslu (Sveinn Runólfsson, 1992). Tölurnar fyrir búfjáráburð eru reiknaðar út af Ernu Bjarnadótt- ur og Stefáni Erni Valdimarssyni (1992). Tölurnar fyrir búfjárá- burð eru jafngildistölur, þ.e. reynt er að miðað við sömu nýt- ingu áburðarefna í búfjáráburði og tilbúnum áburði árið sem bor- ið er á. Ef gert er ráð fyrir að ræktað land á Islandi (tún, akrar og garð- ar) sé um 148.000 ha (Upplýs- ingaþjónusta landbúnaðarins 1991), þá hefði áburður á hektara verið : 95 kg köfnunarefni, 23 kg fosfór og 43 kg kalí. Það er ákaflega örðugt að gera sér grein fyrir því hve mikið skol- ast út í sjó og vötn af áburðarefn- um á Islandi. Orkustofnun athug- aði efnamagn í Grímsá árin 1973 - 1974. Á grundvelli þeirra efna- greininga reyndi Friðrik Pálma- son o.fl. (1989) að reikna út hve mikið hefði skolast út af áburðar- efnum. Útskolun á köfnunarefni af vatnasvæði Grímsár í heild virtist vera um 0,7 kg af köfnun- arefni á hektara. Það var ekki auðvelt að gera sér grein fyrir hve mikið af þessari útskolun kom af túnunum í dalnum, en höfundum fannst líklegt að það væri á bilinu 6,5 - 20 kg/ha N. Hólmgeir Björnsson (1980) hefur bent á að mjög mikið af köfnunarefni er bundið í mýrar- jarðvegi. Þegar mýrar eru þurrk- aðar og þær fara að rotna losnar verulegt magn af köfnunarefni úr þeim. Þorsteinn Guðmundsson (1988 - 1989) mældi hve mikið losnaði af köfnunarefni úr mýrar- jörð á Hvanneyri. Úr óframræstri mýri losnaði ekkert köfnunarefni, í framræstu túni mældist losunin 10 kg/ha N og í garði sem var innan skjólbelta mældist losunin 31 kg/ha N. Þetta þýðir að fram- ræsla losar áburðarefni sem plöntur taka upp eða skolast út í ár, vötn og hafið. Hugsanlegt er að einhvers stað- ar á Islandi séu vötn eða ár þar sem um ofauðgun er að ræða, en það er þá aðeins á örfáum af- mörkuðum stöðum. Hins vegar er vitað að skortur á köfnunarefni takmarkar oft afköst lífkeðjunnar í vötnum Norður-Evrópu og er Þingvallavatn sennilega meðal þeirra. Dr. Björn Jóhannesson (1984) taldi líklegt að það þyrfti að bera á mörg vötn á íslandi til að af þeim fengist fullur afrakst- ur. Erlendis hafa menn áhyggjur af Tafla 1. Magn af N, P og K, sem notað var á íslandi 1990. N, tonn P, tonn K, tonn Tilbúinn áburður mínus áburður til landgræðslu 12.247 2.636 3.953 Búfjáráburður, nýtanleg efni 1.885 722 2.470 Alls 14.132 3.358 6.423

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.