Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.1993, Blaðsíða 39

Freyr - 01.11.1993, Blaðsíða 39
21 .'93 FREYR 795 Öll þau ormalyf sem nú eru skráð hér á landi til nota gegn ormum á sauðfé eru ekki hættuleg, og eru bæði fjölvirk og mikilvirk, gefin í réttum skömmtum. Til þess að girða fyrir að fram komi ónæmir ormastofnar, hefur verið ráðlagt að gefa ekki sama ormalyfið mörg ár í röð heldur skipta árlega um lyf. Þegar gefa á mörgu fé ormalyf, er nauðsynlegt að hafa samhentan mannskap svo að verkið gangi greiðlega og fari vel úr hendi og gæta þess að hver kind fái sinn afmælda skammt. Umfram allt þarf að lesa vel þær leiðbeiningar sem lyfjunum fylgja áður en verkið er hafið og fylgja þeim eins vel og kostur er. Alltaf skyldi gefa lyfin inn með varúð. Stöðugt er unnið að því víða um lönd að finna ný og virkari lyf gegn ormum og ný lyfjaform sem eru handhægari í notkun. Sífellt er ver- ið að auka við þekkingu okkar á lífsskilyrðum ormategunda og með hvaða hætti vænlegast sé að draga úr skaðsemi þeirra. Ýmsir binda vonir við að takast megi að beita ónæmisaðferðum í baráttunni við ormaveikina. Reynslan hér á landi hefur sýnt að það sem jafnan skiptir mestu máli til að verja féð ormaveikinni er góð meðferð fjárins, alhliða og nægilegt vetrarfóður og frjálsræði í högum. Ef hinsvegar ber útaf um með- ferð fjárins, svo grunur leiki á að ormaveiki sé að búa um sig í hjörð- inni, er nauðsynlegt að grípa til lyfjagjafa og láta það ekki dragast. Það á enn við sem Niels Dungal orðaði svo fyrir meira en hálfri öld: „Það er betra að losa féð við ormana heldur en hafa heilan her- skara af ormum á fóðrum með fénu“. Heimildir Guðmundur Gíslason: Freyr 1966, 62, 89-92. Guðmundur Gíslason: Læknablaðið 1968, 54, 19-32. Jón H. Þorbergsson: Um hirðingu sauð- fjár. Rvík. 1912. Magnús Einarsson: Freyr 1918, 15, 68. Niels Dungal: Búnaðarrit, 1936, 51, 23- 44. Páll Stefánsson: Fjármaðurinn, Rvík 1913. Sigurður Richter o.fl: Freyr, 1981. 77, 547-551. Stefán Sigfússon: Búnaðarrit 1893, 7, 123-168. Merck Vetrinary Manual, 7. útg. 1991, 1481-1497. Sérlyfjaskrá, 1993. Rvík 1993. Sykes A.R. Mcfarlane R. G. og Fantilton A.S. í: Progress in Sheep and Goat Research 1992, 179-191, ritstjóri Speedy A.W. Búrhœnsni og mengun hafa svert landbúnaðinn Landbúnaðarráðherrar EB rœddu „ímynd“ atvinnuvegarins. Landbúnaður nýtur nú minna álits í huga almennings í EB-löndum en var fyrir nokkrum árum. Hlutir eins og búrhænsni og meðferð á dýrum, umhverfismál og birgðir offramleiðslu hafa gert fólk tortryggið um hvað fram fer í landbúnaði. Þetta var almennt álit landbún- aðarráðherra EB þegar þeir komu saman til fundar í september sl. í belgíska bænum Ostende. Belgísku gestgjafarnir höfðu sett „ímynd“ landbúnaðarins á dag- skrána. Áhyggjur Nokkrir ræðumanna bentu á að umhverfismál, lyfjamisnotkun og ámælisverð meðferð á skepnum hafi skaðað álit landbúnaðar í aug- um almennings. Landbúnaðarráð- herrarnir lýstu áhyggjum yfir því að sífellt verði erfiðara að afla fylg- is við gríðarleg útgjöld vegna land- búnaðar á fjárlögum EB, einkum ef þessi atvinnuvegur nýtur ekki meira álits í hugum almennings. Ábyrgðin í viðtali sem danska búnaðarblað- ið Landsbladet átti við Bjprn Westh, landbúnaðarráðherra, tel- ur hann að landbúnaðarráðherr- arnir eigi sjálfir allnokkra sök á slöku áliti atvinnuvegarins. Hann segir að landbúnaðarráðherra- nefndin beri hluta af ábyrgðinni. Annars vegar setji hún of margar reglur sem bændum þyki vera vit- lausar og á hinn bóginn séu sumar af reglugerðum þeirra þess háttar að almenningi finnist ekki öruggt að landbúnaður sé rekinn forsvar- anlega. Búrhœnsni Sem dæmi nefnir Bjprn Westh reglur um búrhænsni, en þær telur hann gallaðar. Bændum finnist þeir vera neyddir til að framleiða á þann máta sem þeim sé á móti skapi, og jafnframt skaði búr- hænsnarækt álit fólks á landbúnaði af því að menn finni henni of mikið til foráttu. Ef við gætum, segir hann, búið til skiljanlegri reglur og reglur sem tryggðu betri meðferð á dýrum, bættum við álit almennings á land- búnaði.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.