Freyr - 01.11.1993, Blaðsíða 19
21.’93
FREYR 775
Dagný, dóttir Jóninu og Stefáns
dundar í litlu gróðurhúsi sem líka er
notað fyrir kaffistofu.
notadrjúgt, ég hef enga minnimátt-
arkennd, þó að ég hitti gjarðyrkju-
fræðing, sagði Jónína og hló. En ég
hef sótt námskeið suður á Garð-
yrkjuskóla síðustu árin eftir að
krakkarnir fóru að komast upp.
Þau Jónína og Stefán eiga fimm
börn, fjóra syni og eina dóttur.
Jónína hefur 1400 fermetra und-
ir gleri og hefur fólk í vinnu tíma og
tíma. Sigríður Júlía Brynleifsdótt-
ir, tengdadóttir hennar, var að
vinna í garðyrkjustöðinni þegar
blaðamann bar að garði.
- Það er mjög gott að vera hér,
sagði Jónína, ég vil ekki annars
staðar vera. Hér er verðursælt og
talsvert af heitu vatni, að vísu ekki
nema 65 stiga heitt.
Hvernig líst þér á erlenda sam-
keppni á grænmetis- og blóma-
markaðnum?
- Ég held að við vinnum þetta í
rólegheitum. Það verður nokkuð
erfiður tími framundan, en það
síast inn í fólk smátt og smátt að
munurinn á þessari vöru er ekki
bara verðmunur, það er mikill
gæðamunur. Og fólkið gerir gæða-
kröfur, þó að það sé ekki nógu
Jónína hugar að stjúpmæðrum í útibeði.
mikið í umræðunni í dag. En við
vinnum á í rólegheitum, en við
búum við það núna að varan sem
við seljum er helmingi of lág í
verði. Það næst ekki framleiðslu-
kostnaðarverð fyrir tómata og
gúrkur um þessar mundir.
Hvernig bregðist þið við því?
Samkeppnin er orðin það hörð
að við erum að selja sumarblóm og
garðplöntur á sama verði fjórða
árið í röð. Það er auðvitað tekju-
rýrnun. Maður setur sig í nokkrar
skuldir núna, því að við verðum að
halda áfram að byggja upp og end-
Um 400 nautgripir eru undir
hnífnum á bæ einum á Skáni,
vegna gruns um garnaveiki. Kú var
lógað í júlí eftir langvarandi iðra-
sótt og lepru. Krufning leiddi í ljós
breytingar í þörmum sem minna
mikið á einkenni garnaveiki.
Vegna þessa er bærinn einangrað-
ur. Garnaveiki er smitandi
sjúkdómur í nautgripum, sauðfé
urbyggja. í fyrravetur byggðum
við fyrir á þriðju miljón kr. og
tekjurnar lækka. Það er ekkert
nema bjartsýnin sem heldur okkur
á floti því ef maður hættir að
byggja upp og lætur eignirnar
drabbast niður, hallar fljótt undan
fæti. En maður verður samt að
taka þessari lægð sem er í dag með
þeirri trú og bjartsýni að fólkið
kaupi íslenskt grænmeti þegar það
er búið að japla á því útlenda um
tíma, sagði Jónína Friðriksdóttir
að lokum.
J.J.D.
og geitum af völdum starfgerilsins
Myeeobacterium paratuberculos-
is. Einkenni hans er langvarandi
bólga í slímhúð þarma og skita sem
leiðir til þess að skepnan dregst
upp og deyr. Garnaveiki er haldið í
skefjum með bólusetningu. Þessi
sjúkdómur barst til íslands árið
1933 með karakúlfé.
—M1
Garnaveiki í Svíþjóð