Freyr - 15.02.1994, Blaðsíða 10
Vigdís forseti heimsótti handiðjusýn-
inguna í Kringlunni í Reykjavík. Hér
rœðir hún við Sigríði Sigurðardóttur,
húsfreyju á Vaðbrekku, en kvenna-
hópur á Jökuldal sérhœfir sig í vörum
úr hreindýraskinni.
ar til þess að örva starfsemina í
viðkomandi héruðum að fólk nálgist
markaðinn á þennan hátt, að það
mæli sína stöðu og möguleika og ef
góður árangur næst, þá er það
örvandi fyrir framleiðendur á svæð-
inu í heild.
Næsti vettvangur var ekki beinlín-
is á mínum vegum, en með stuðningi
Smáverkefnasjóðsins; það var mikil
handverkssýning á Hrafnagili í Eyja-
firði 18. og 19. júní. Fyrir þeirri
sýningu stóðu eyfirskar konur og
átaksverkefnið Vaki, sem þar er
starfrækt. Þar var í forsvari Elín
Antonsdóttir verkefnisstjóri og var
undirbúningur til mikillar fyrir-
myndar.
Ég sótti þá sýningu og sá þar fyrst
hversu gríðarleg fjölbreytni er orðin
í handverks- og smáiðnaði. A
Hrafnagili voru á 2. hundrað sýn-
endur og sýningin geysilega vel upp-
sett og fjölbreytt, hún vakti mikla
eftirtekt og mikið umtal, var vel
sótt, sérstaklega seinni daginn. Pá
var eins og að það hefði spurst út að
þarna væri merkileg sýning og mikill
straumur fólks kom seinni daginn.
Til umtals kom að framlengja hana
um einn dag, en því miður var það
ekki hægt.
Ég held að Eyfirðingar stefni að
Frá sýningu á Hótel Sögu í mars 1993.
Handverkskonur milli heiða, Suður-
Pingeyjarsýslu.
því að festa þessa sýningu í sessi sem
árlegan viðburð og tel að það væri
vel.
Næsta sýning og sú síðasta á þessu
ári var í Kringlunni í Reykjavík í lok
nóvember sl. og var verið að huga að
jólaverslun í því sambandi. Þar voru
15 sýnendur, bæði einstaklingar og
hópar, og þar var aftur haft að leið-
arljósi að ná sem mestri dreifingu af
landsbyggðinni. Það var reyndar
Frá sömu sýningu. Vörur selabœnda.
takmörkuð sýning en afskaplega vel
heppnuð. Og þar má kannski segja
að þessir hópar hafi komist í snert-
ingu við hringiðu viðskiptanna í höf-
uðborginni; það eru e.t.v. aðrir við-
skiptavinir sem koma í Kringluna
heldur en í Kolaprotið að því ólöst-
uðu. Mér heyrist að þátttakendur
þarna hafi yfirleitt verið mjög
ánægðir með árangurinn og þá
reynslu sem þeir fengu í Kringlunni.
Frá sýningunni „Sveitadagar í Kolaporti". Hattar frá Sigríði Hafstað á Tjörn í
Svarfaðardal.
106 FREYR - 6*94