Freyr - 15.02.1994, Blaðsíða 16
Áburðarframleiðsla á íslandi
Hákon Björnsson
Fyrir fjörutíu árum, eða árið 1954, hóf Áburðrarverksmiðja ríkisins framleiðslu á tilbúnum
áburði. Það ár voru seld 24.000 fonn af tilbúnum áburði hér á landi. Stöðug aukning var í
notkun tilbúins áburðar nœstu 28 árin og náði hún hámarki árið 1982 þegar seld voru
71.460 tonn.
Hákon Björnsson.
Frá þeim tíma hefur áburðarsala
dregist verulega saman og nam hún
53.800 tonnum árið 1993. Reikna
má með frekari samdrætti í notkun
tilbúins áburðar á næstu árum.
Samkvæmt lögum um Áburðar-
verksmiðju ríkisins hefur hún haft
einkaleyfi til þess að framleiða,
flytja inn og selja tilbúinn áburð hér
á landi. Einkaleyfi þetta mun falla
niður hinn 1. janúar 1995 og verður
þá innflutningur á tilbúnum áburði
öllum frjáls.
Því verður ekki á móti mælt að
nokkur óvissa ríkir nú um áburðar-
framleiðslu hér á landi. Óvissa þessi
skapast í fyrsta lagi af því að ekki er
enn séð fyrir endann á samdrætti í
notkun áburðar hér á landi og í öðru
lagi af því að ekki er vitað hvernig
Áburðarverksmiðjunni reiðir af í
væntanlegri samkeppni við innflutn-
ing. Hagkvæmni í áburðarfram-
leiðslu er mjög háð stærð verksmiðj-
anna. Því stærri sem þær eru þvi
hagkvæmari eru þær. Litlar verk-
smiðjur, eins og verksmiðjan í Gufu-
nesi, kunna því að eiga erfitt upp-
dráttar í samkeppni við margfalt
stærri verksmiðjur þrátt fyrir að þær
njóti fjarlægðarverndar (flutnings-
verndar).
Fram hefur komið í máli bænda að
þeir hafa orðið varir við að áburður
sé mun ódýrari erlendis en hér á
69887
70000
60000 !
50000 :
40000 •
30000 :
20000 I
10000
0 '
llllllllll
^LDCDr^COœOT-CNJCO
COCOCOCOCOCOCDOCDCT)
0)00000)0)00)0
112 FREYR - 6 94
Áburðarsala í tonnum árin 1984-1993.