Freyr - 15.02.1994, Blaðsíða 20
ingunni. Fyrningargrunnur þessara eigna verður því
lægri sem styrknum nemur.
Nær allir frádráttarliðir á skattframtali voru felld-
ir burt árið 1988. Þeir sem eftir standa, koma bænd-
um að litlu gagni að undanskildum vaxtabótum til
þeirra sem eru að byggja íbúðarhús eða hafa nýlega
keypt jörð. Húsnæðissparnaðarreikningur og kaup á
hlutabréfum standa enn. Rétt er að benda á að gildi
þeirra mun þó minnka ár frá ári næstu árin.
Leiðbeiningar ríkisskattstjóra með dæmum, skýra
skattframtal mjög vel og því ástæðulaust að fjalla
hér um það.
Rétt er að benda lesendum á að lesa aðeins þær
leiðbeiningar sem tilheyra þeim blöðum, sem verið
er að fylla út hverju sinni.
Sala á fullvirðisrétti.
Sala á fullvirðisrétti milli bænda er nú kominn í
fast form. Lagagreinin heitir „Niðurfærsla eigna“.
Keyptan fullvirðisréttur skal færður niður með jöfn-
um árlegum fjárhæðum á fimm árum. T.d keyptur
fullvirðisréttur að upphæð 1.400.000 kr. skal færður
niður um 280.000 kr. á ári. Hér er því ekki um
raunverulega fyrningu að ræða, heldur niðurfærslu
eigna. Ekki má verðbæta þessa eign með verðbreyt-
ingarstuðli eins og aðrar eignir á fyrningarskýrslu.
Einnig færist eignin niður í 0 á fimmta ári. Niður-
færslan verður þar af leiðandi öll árin 280.000 kr.
sjá fyrningaskýrslu. (Mynd 1).
Um söluhagnað framleiðsluréttar í landbúnaði
gilda því sömu reglur og um aðrar ófyrnanlegar
eignir. Algengasta aðferðin er sú að telja helming
söluverðs til tekna eins og um sölu lands væri að
ræða. Fylla þarf út eyðublaðið „Kaup og sala
eigna“.
SkatthluHall og fleira vegna tekna 1993
Skatthlutfall var í staðgreiðslu 41,34%
(Tekjuskattur 34,3%, útsvar frá 3,0% til 7,5% eftir
sveitarfélögum).
Tekjuskattur félaga s.f. 41% annara félaga 33%
Tekjuskattur barna 4% og útsvar 2%. (Enginn per-
sónuafsláttur).
Persónuafsláttur 285.132 kr. (Ónýttur millifærist
80% milli hjóna).
Skattleysismörk á tekjur 1993 eru um 690.000 kr.
Húsnæðissparnarðarreikningur. Viðbótar persónu-
afsláttur vegna innleggs á slíkan reikning er 20% af
innleggi: (Verður á árinu 1994 15%) Hámark
108.340 kr., en lágmark 10.834 kr. á einstakling.
Eignarskattur. Af fyrstu 3.572.684 kr. greiðist eng-
inn skattur. Af næstu 6.428.594 kr. greiðast 1,2%.
Af því sem umfram er 10.001.278 kr. greiðist 1,2-
1,95%. Það fer eftir tekjum. (Tekjubilið er
1.016.700 - 2.033.400 kr.). Sérstakur eignarskattur
0,25% er af eign yfir 5.162.803 kr., ef framteljandi
er innan við 67 ára að aldri.
Gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra 3.915 kr. Tekju-
mark 698.724 kr. (til 70 ára).
Vaxtabætur reiknast þannig: Frá 90% af vaxtagjöld-
um er dregið 6% af tekjum og 6% af nettó eign
umfram lágmark.
Fæðisfrádráttur er 388 kr. á dag.
Barnabætur fyrir árið 1994. Með fyrsta barni 9.032
kr. Með öðru barni og fleiri börnum eru barnabæt-
ur 28.024 kr. á barn. Ábót er 29.400 kr., ef barn er
yngra en 7 ára.
Með fyrsta barni einstæðra foreldra eru barnabætur
67.836 kr. en með öðru barni og fleirum 72.128 kr.
á barn. Ábót er 29.400 kr. ef barn er yngra en 7
ára.
Staðgreiðsla 1994. Skatthlutfall 41,79% (f. janúar).
Persónuafsláttur kr. 23.915 á mán.
(Skattleysismörk kr. 57.000 á mán. Á ári um
684.000).
Hátekjuskattur er 5% af skattstofni umfram
2.440.080 kr. hjá einhleypingi en 4.880.160 kr. hjá
hjónum.
Viðmiðunarreglur um reiknuð laun 1993.
1. Bóndi 634.248 kr. eða 53.604 kr. á mánuði.
2. Hjón 1.286.496 kr.
3. Barn yngri en 16 ára, 177.344 kr. Sjá viðmiðun-
arreglur í leiðbeiningum ríkisskattstjóra.
Vaxtabœtur
Rétt til vaxtabóta eiga þeir, er bera vaxtagjöld af
lánum sem tekin hafa verið vegna kaupa (jarða-
kaupa) eða byggingar á íbúðarhúsnæði til eigin
nota.
Vaxtabætur ákvarðast þannig að frá vaxtagjöld-
um í reit 87 dragast vaxtatekjur í reit 14 og 6% af
tekjuskattstofni samkv. tölulið 7.9. Ef um er að
ræða hjón eða sambýlisfólk, sem á rétt til samskött-
unar, reiknast 6% af samanlögðum tekjuskattsstofni
þeirra beggja. Hámark vaxtabóta eru kr. 125.054
hjá einstaklingi, kr. 163.689 hjá einstæðu foreldri og
203.340 kr. hjá hjónum og sambýlisfólki. Hjá ein-
staklingi og einstæðu foreldri skerðast þannig
ákvarðaðar vaxtarbætur hlutfallslega, fari eignir
samkv. reit 16 að frádregnum eignum í reit 04 og
skuldum skv. reit 86 fram úr 3.105.002 kr., uns þær
falla niður við 4.968.003 kr. Vaxtabætur hjóna og
sambýlisfólks skerðast á sama hátt, fari samanlagð-
ar eignir þeirra að frádregnum skuldum fram úr
5.146.535 kr. uns þær falla niður við 8.234.456 kr.
Vaxtabætur geta aldrei orðið hærri en 125.054 kr.
fyrir hvern mann, 163.689 kr. fyrir einstætt foreldri
og 203.340 kr. fyrir hjón eða sambýlisfólk.
116 FREYR - 6 94