Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.10.1998, Qupperneq 9

Freyr - 15.10.1998, Qupperneq 9
Kristín Finnbogadóttir rekur lodkanínubú á Þórustöðum í Ölfusi: Það vantar leiðbeiningar Loðkanínurækt á sér ekki langa sögur hér á landi. Nokkrar kan- ínur voru fluttar til landsins í febrúar sl. og meðal þeirra sem hófu þá ræktun var Kristín Finnbogadóttir ásamt sambýlismanni sínum, Kristni Gamalíelssyni. Kristinn lést í vor en Kristín hefur haldið búskapnum áfram. Hvernig bar það að að þú fórst að reka kanínubú? Það kom hingað kona í fyrrahaust til að kenna fólki að meta minkaskinn. Hún talaði um að þessi búgrein myndi henta mjög vel á Islandi þar sem hér væri mikið af ónotuðum hús- um og nóg af heyi en á því nærast kanínumar aðallega. í kjölfarið pönt- uðu um 20 aðilar sér nokkur dýr hver. Á hverju eru dýrin fóðruð? Danir telja að hægt sé að fóðra þau 90% á heyi. Við höfum hins vegar gefið þeim alls konar grænmeti og ávexti en við fáum að hirða ýmsan matarúrgang í kaupfélaginu. Við byrjuðum á því að prófa allar teg- undir en síðan hefur maður hætt með eitt og annað. Þau þola vel epli, sæmilega banana og svo gefum við þeim kál, annað en hvítkál. Það er lrka mjög gott að gefa þeim brauð. Svo þurfa þær einhvem fóðurbæti, sérstaklega í kringum got og á meðan þær eru með unga. Hvað ertu með margar kan- ínur? Við fluttum inn 28 kanínur. Sóttkví- in var síðan aflögð í ágúst og þá var farið að úthluta til þeirra bænda sem áttu eftir að fá sinn hlut. Þær em því orðnar um 50 og þær fjölga sér ört. Hvað fer mikið af heyi í kan- ínurnar? Þær hafa frjálsan aðgang að heyi. Það er reyndar misjafnt hvað þær éta mikið en það getur þó verið töluvert, sérstaklega ef þær hafa ekki annað að éta. Hvað fer mikill tími í hirðing- una? Mér finnst þetta vera þónokkuð tímafrekt. Ef þær gætu hins vegar séð sjálfar um brynningu og við þyrftum ekki að gefa þeim grænmeti Kristín Finnbogadóttir sýnir börnum eina af loðkanímun sínum. Börnin eru augljóslega hriftn af þessum fallegu dýrum. Freyr 1 3/98 - 9

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.