Freyr - 15.10.1998, Page 35
Aðalfundur Sambands ís-
lenskra loðdýrabœnda 1998
Aðalfundur Sambands íslenskra
loðdýrabænda var haldinn að
Flúðum laugardaginn 22. ágúst í
blíðskaparveðri. A föstudeginum
var búdagur sem haldin hefur verið
undanfarin ár daginn fyrir aðalfund,
að þessu sinni voru búin Mön og
Asgerði skoðuð, auk ýmissa tækja
sem voru til sýnis. A fundinn mættu
um 16 fulltrúar víðsvegar af land-
inu. Þó vantaði nokkra til að fylla
þann fjölda fulltrúa sem rétt höfðu
til fundarsetu. Auk þess komu
nokkrir gestir.
Hákon Sigurgrímsson sagði að
landbúnaðarráðuneytið hefði kann-
að starfsskilyrði loðdýraræktarinnar
og beðið Byggðastofnun um að gera
úttekt á fóðurframleiðslu loðdýra-
fóðurs. I framhaldi af því vann
Byggðastofnun skýrslu í vor. Þar
kemur meðal annars fram að fóður-
framleiðslan er dýrari hérlendis þrátt
fyrir ódýrara hráefni. Landbúnað-
arráðuneytið óskaði frekari upplýs-
inga frá Byggðastofnun varðandi
rekstrarumhverfi fóðurstöðva.
Reglugerð um kanínurækt hefur
verið endurskoðuð með tilliti til
feldkanínuræktar
Sigurgeir Þorgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Bændasamtaka ís-
lands, lagði áherslu á að unnið yrði
frekar að gæðastjómun í framleiðslu
loðdýrafóðurs og ræddi nokkuð um
starfssamning milli BI og SIL sem
lá fyrir fundinum og hugrenningar
loðdýrabænda um aðild að BÍ. Hann
taldi rétt að menn ræddu slík mál en
sagði jafnframt sitt álit vera að staða
loðdýrabænda myndi veikjast við að
standa einir.
Magnús B. Jónson skólastjóri á
Hvanneyri fór lítillega yfir það sam-
starf sem er á milli Hvanneyrar og
SIL o. fl. í tengslum við loðdýra-
ræktina og sagði að skólinn væri
kannski ekki mjög sýnilegur í dag-
legu starfi loðdýrabænda en þar
væri unnið að margvíslegum verk-
efnum í sambandi við búgreinina.
Hann sagði að búið væri að fá Alf-
heiði Marinósdóttur til starfa við
gæðastjómun í fóðurgerð. Nú er
komið meira samstarf á milli
Bændaskólans og annarra háskóla í
landbúnaðarvísindum á Norður-
löndunum í Ameríku og Kanada,
þetta yki svigrúm nemenda búvís-
indadeildar til frekara náms og sér-
hæfingar.
Jón Guðbjömsson framkvæmda-
stjóri Framleiðnisjóðs sagði meðal
annars að aðstaða sjóðsins hefur
breyst, minna fjármagn er til ráð-
stöfunar og þá minni umsvif, og
skarpari línur í fjárveitingum.
Helstu ályktanir fundarins vom
eftirfarandi:
• Þeir bændur sem taka ekki blóð-
sýni v/plasmacytosis fá ekki að
senda skinn á landssýningu SÍL.
Auk þess verði skinnaverkunar-
stöð sem verkar skinn fyrir fleiri
loðdýrabændur gert að fá blóð-
sýnatöku-staðfestingu frá bænd-
um sem verkað er fyrir.
• Stjóm félagsins beiti sér fyrir
námskeiðahaldi úti á félagssvæð-
um loðdýrabænda í samráði við
Endurmenntunardeildina á
Hvanneyri.
• Skorað var á landbúnaðarráð-
herra og ráðamenn Bændaskól-
ans á Hvanneyri að efla loðdýra-
tilraunir á Hvanneyri.
• Stjóm SIL beiti sér fyrir nýrri
heildarskipulagningu í loðdýra-
ræktinni. Þar komi meðal annars
fram áætlun um uppbyggingu og
framleiðslu í greininni, endur-
skipulagning og breytingar á
eldri búum, staðsetning, upp-
bygging og þróun fóðurfram-
leiðslunnar, félagskerfi og fag-
svið loðdýraræktarinnar.
• Að stjóm SÍL taki upp viðræður
við Lánasjóð landbúnaðarins um
endurmat á reglum um kostnað-
armat húsa og annars búnaðar,
einnig reglur um hámarksbú-
stærð. Og athuga hvort fasteigna-
mat sé í einhverium tilvikum of
hátt.
• Stjóm SÍL hefji þegar viðræður
um breytingu á þeim hluta sjóða-
gjalda er rennur til Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins
• Stjórn SÍL var falið að taka upp
viðræður um aðild að BÍ og þjón-
ustu BI ásamt samstarfssamningi
samtakanna.
Kosnir voru tveir aðalmenn í
stjóm, Bjami Stefánsson Túni var
endurkjörinn en Bjami Ólafsson
Selfossi er nýr í stjóm samtakanna
og varamenn þeirra em Úlfar
Sveinsson Syðri-Ingveldarstöðum
og Stefán Guðmundsson Mön.
Reynir Barðdal Sauðárkróki og
Haraldur Stefánsson Brautarholti
| em félagskjömir endurskoðendur
og Jón Sigurðsson Sauðárkróki til
vara. En stjóm félagsins er þá
þannig skipuð í dag:
Ámi V. Kristjánsson Brúnagerði
Bjami Ólafsson Selfossi
Bjami Stefánsson Túni, formaður
Reynir Sigursteinsson Hlíðarbergi
Þorbjöm Sigurðsson Ásgerði II.
I lok fundarins minntist Bjami
Stefánsson formaður SIL á bann og
aðrar hömlur í loðdýrarækt í öðmm
löndum, það gæfi ákveðið svigrúm
hérlendis um tíma, en slík sjónarmið
geta komið upp hérlendis hvenær
sem er svo við verðum að vera vel á
verði.
Freyr 1 3/98 - 35