Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.2003, Qupperneq 38

Freyr - 01.08.2003, Qupperneq 38
Úr Vaglaskógi. Birki hentar vel i beitarskóga, enda blómlegur undirgróður. Auk þess erþað eðaltimbur ef það vex vel. | 38 - Freyr 6/2003 leggja niöur framkvæmdadeild Forestry Commission, a.m.k. sem starfsemi á landsvísu. Eg get eng- an veginn komið auga á nauðsyn þess að ríkið sé að stunda eða stjórna skógrœkt. Skógrœkt á að stjórna heima í héraði, það er lið- in tíð að þjóðaröryggi kalli á að rikið stjórni skógrœkt i landinu þegar timburskógar eru hættir að vera hernaðarlega mikilvægir. I öðru lagi þarf stefna í skóg- rœktarmálum og sú birtingar- mynd hennar, sem birtist í styrkja- kerfi til skógrœktar, að vera mót- uð og henni stjórnað heima fyrir svo að íbúar hvers landshluta geti ákveðið hvernig skógrœkt henti á hverju svæði.. Menntuðum skóg- frœðingum, sem nú vinna jyrir skógrœktina, ætti ekki að reynast erfitt að vinna með fulltrúum heimamanna til að tryggja að skógrækt i landinu þjóni jafnt hagsmunum einstakra landshluta og þjóðarinnar í heild. En hvers vegna legg ég slika áherslu á þessar breytingar? Svar- ið er einfalt. Eg held að stjórn og eignarhald skipti máli. Fólk vinnur vinnuna sina af meiri krafti, með fneiri hugsun og meiri ánœgju þeg- ar ávinningurinn er sýnilegur. Douglas MacMillan er kennari (senior lecturer) í hagfræði við Landbúnaðar- og skógffæðideild Aberdeenháskóla, og lítur á sig sem jarðbundinn hagfræðing, (með skógræktarhjarta). Þýð./AÓ. Þó að þessi orð séu sett fram um skoska skógrækt eru þó algild sannleikskom í þeim varðandi þá stefhu sem við tökum varðandi skógrækt á íslandi og aðra land- nýtingu. Það er engin ein lausn til heldur þurfum við að taka frum- kvæði hvert á sínum stað, fylgjast með stefnum og straumum og velja síðan og hafna eftir því sem þekking okkar á staðháttum segir Bygg og ösp i Bretlandi eða hlynur og * Aukum verðgildi skóganna með því að koma upp stað- bundnum úrvinnsluiðnaði. Komum okkur upp héraðs- merkingum, þær eru besta að- ferðin til að hlifa okkur við al- þjóðlegri samkeppni. Skógar- fura frá Caledóníu (Skotlandi), er aðeins rœktuð á einum stað í heiminuml! * Hugsum á héraðsvísu, tryggj- mais á Suðurlandi. um að sú verðmætasköpun sem verður til í skógum og úr trjám verði eftir i héraði en ekki flutt sem ódýrasta hráefni til ein- hvers ehf. sem hvergi á sér óð- al! Til að hrinda þessum hugmynd- um i framkvœmd þurfa að verða ákveðnar grundvallarbreytingar á fyrirkomulagi skoskra skógrœkt- armála. I fyrsta lagi þarf að

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.