Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.2002, Blaðsíða 2

Freyr - 01.08.2002, Blaðsíða 2
Breytt landbúnaðarstefna í ESB eftlr stjórnar- sMptl í ýmsum löndum sambandslns Iár, 2002, hafa farið fram eða eiga eftir að fara fram þing- kosningar í mörgum löndum ESB. Nýjar ríkisstjórnir hafa verið myndaðar og breytingar orðið á ráðherraráði ESB. Þar má fyrst nefna Holland en þar tók ný ríkisstjóm við í kjölfar kosninga. Nýr þingmeirihluti myndaðist í Irlandi eftir kosning- ar sem hafði þó ekki veraleg áhrif á samsetningu ríkisstjómarinnar. A þessu ári og hinu síðasta hafa einnig orðið stjómarskipti í Frakklandi, Portúgal og Dan- mörku. Síðar á árinu verða kosn- ingar í Þýskalandi og Svíþjóð. í ráðherraráði ESB sitja 87 manns, þar af hafa breytingar orðið á 26 sætum á árinu og í mörgum tilfellum flust til í hinu pólitíska litrófí. Að auki geta orð- ið breytingar á 14 sætum í kosn- ingum síðar á árinu. Þetta mun skipta veralegu máli við ákvarð- anatökur í ráðinu. Hvað varðar hina sameiginlegu landbúnaðarstefiiu ESB, (oft nefnd CAP) skipta þessar breyt- ingar máli. Þar má nefna fyrri ákvarðanir um að flytja framlög frá beinum framleiðslustyrkjum yfír í styrki til þróunannála í dreifbýli. Fyrri ríkisstjóm í Portú- gal hafði samþykkt slika áætlun, en ný stjóm, hægrisinnaðri en hin fyrri, stöðvaði þær áætlanir. Breytt stefna Frakka Nýr landbúnaðarráðherra Frakka, Hervé Gaymard, hefur einnig lýst því yfir að hann vilji hnika til núgildandi stefnu um nýtingu framlaga til landbúnaðar og draga úr byggðasfyrkjum, í því skyni að tryggja að fjármun- imir verði nýttir. Nýr landbúnaðarráðherra Dana, Mariann Fischer Boel, tók við starfínu af Ritt Bjerregard, sem var veralega umdeild. Nýi ráð- herrann hefur lýst yfír skilningi sínum á því að danskur land- búnaður verði að hafa tryggan rekstrargrundvöll. Ný ríkisstjóm Dana hefúr þó lýst sig fylgjandi núverandi landbúnaðarstefnu ESB, og þar með auknum styrkj- um til dreifbýlis. Skipt var um að landbúnaðar- ráðherra í Þýskalandi snemma árs 2001, í kjölfar kúariðuveiki sem þar kom upp. Nýi ráðherrann, Renate Kiinast, er úr flokki Græningja og hefur hún breytt landbúnaðarstefnunni og lagt áherslu á lífrænan landbúnað og matvælaöryggi. Kosningar verða í Þýskalandi með haustinu. Bændur fylgja venju samkvæmt hægri flokkun- um, PDU og PSU. Ef foringi stjómarandstöðunnar, Stoiber, nær völdum mun það án efa leiða til breyttrar landbúnaðar- stefnu Þýskalands. Þýskir stjóm- málamenn era þó allir sammála um að draga úr framlögum landsins til landbúnaðarsjóða ESB. Stækkun ESB mun því verða grandskoðuð þar í landi án tillits til þess hvaða stjóm tekur við völdum. (Unnið upp úr Intemationella Perspektiv nr. 19/2002). Sólln þaggar þokugrát Ein í tlokki fegurstu og best kveðnu vísna á ís- lenskri tungu er eftirfarandi vísa: Sólin þaggar þokugrát, þerrar saggans úða. Fjólan vaggar kolli káí, klœdd úr daggarskrúða. Vísa þessi hefur birst í vísna- þáttum blaða og víðar, stundum ófeðrað, stundum með höfund- amafni og jafnvel fæðingarári höfundar, en þó án þess að les- endur séu miklu nær um hann. Höfundur vísunnar hét Jónas Jónasson, f. 30. júlí 1850, kenndur við Torfmýri í Blöndu- hlíð, sem nú er eyðibýli, skammt frá Flugumýri. For- eldrar hans voru Jónas Pétursson, bóndi á Ytri-Löngu- mýri i Blöndudal, og Sigriður Olafsdóttir, ógift vinnuhjú, eins og þá var nefnt. Jónas var ráðsmaður á Stóra- Ökram en síðar talinn fyrir búi á Torfmýri og Dýrfínnustöðum. Loks gerðist hann ráðsmaður að Syðri-Hofdölum og þar and- aðist hann 30. október 1907. í Skagfírskum æviskrám, 1890- 1910, II. bindi, er þess getið að hann hafí verið skarpgreindur, ágætur hagyrðingur, víðlesinn og fróður. Hann var viðfeldinn í kynningu, skemmtilegur í samræðum og nokkuð ölkær. Hann kvæntist ekki en átti einn son, Jón Eðvald, f. 1876. Því skal spáð hér að fyrmefhd vísa eigi efltir að lifa lengi með þjóðinni og minna á höfund sinn, alþýðumann með ríka skáldgáfu. | 2 - Freyr 7/2002

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.