Freyr - 01.08.2002, Blaðsíða 37
vinnugreinin en hefðbundinn bú-
skapur með kýr, sauðfé, svín og
hænsni var stundaður til sjálfs-
þurftar. Þegar fiskurinn hvarf að
mestu af grunnsævi í eyjaklasan-
um hrundi úteyjabyggðin. Útræði
er nú ekki nema svipur hjá sjón
miðað við það sem áður var þótt
enn sé dreginn einhver fískur úr
sjó. Um ástæður þess að fiskur-
inn hvarf eru skiptar skoðanir, en
margir kenna því um að ígulker
og að einhverju leyti þang- og
þarasláttur hafi leikið þang- og
þarabeltið mjög grátt þannig að á
stórum svæðum er það nánast
horfið. Aðrir nefndu óútskýran-
legar breytingar á lífkerfi sjávar,
samhliða of mikilli veiði á ein-
hverju timabili.
Frá æðarsafninu í Nes. Ljósm. Árni Snæbjörnsson.
Búskapur á Vega
Á sjálfri Vega hefur alltaf verið
stundaður öflugur hefðbundinn
landbúnaður. Þar eru nú um sjö-
tíu býli þar sem bændur búa aðal-
lega við mjólkurffamleiðslu, en
sauðfjárrækt, kartöflurækt og
fleira er stundað í dálitlum mæli.
Meðalbústærð er 15 mjólkurkýr
og er mikið heyjað í vothey þótt
rúllubaggavæðingin hafi vissu-
lega hafið þar innreið sína. Það
vakti athygli ferðalangsins hve
býlin voru snyrtileg og byggingar
í góðu lagi enda kvörtuðu bænd-
umir ekki undan afkomunni, en á
hverjum bæ stundaði annar aðil-
inn vinnu utan bús ef hjón stóðu
að búrekstrinum. Einnig kom
fram að kynslóðaskipti á jörðum
vom ekki talin vera neitt sérstakt
vandamál. Meginvandamál
hjóna, sem hefja búskap og ann-
arra sem ætla að setjast að á eyj-
unni, er að fmna vinnu fyrir
hinn aðilann, sérstaklega ef sá
hinn sami vill nýta sérhæfða
menntun sína. Sagt var bæði í
gamni og alvöru, að ungt fólk
sem ætlaði að hefja búskap eða
hefði aðra vinnu við hæfi þyrfti
helst að eiga kennara eða hjúkr-
unarfræðing að maka ef komast
ætti hjá vandamálum með at-
vinnu við hæfi. Tekið skal fram
að atvinnuleysi er sára lítið á eyj-
unni, en það er fábreytnin í at-
vinnulífi dreifbýlisins sem er
vandamálið. Hver kannast ekki
við það?
Áberandi er hve jarðvegur er
alls staða gmnnur og sendinn,
myndaður af grófum granítsandi
og víða með furðu lítið af lífræn-
um efnum. í þurrkatíð fara tún og
gróðurlendi því mjög illa og hafa
Vegabændur stundum þurft að
kaupa hey, t.d. haustið 1989 frá
Islandi, og létu þeir vel af því.
Frá eyjunni Skjærvær sem er ein ysta eyjan i skerjagarðinum. Myndin er
tekin yfir höfnina og til byggðarinnar. Eyjan er í eyði. Ljósm. Árni Snæ-
björnsson.
Freyr 7/2002 - 37 |