Freyr - 01.08.2002, Blaðsíða 32
Kjarian Jónsson, bóndi á Dunki í Hörðudal hefur útbúið einfaldar sjálffóðrun-
argrindur i fjárhúsum sínum I stað hefðbundinna garða. Grindurnar mynda
fóðurgang eftir endilöngu húsi. Þær eru hengdar á lamir neðan I þaksperr-
urnar og ganga saman að neðan eftir því sem féð étur af heyinu. Heyrúllur
eru fluttar á fóðurganginn með handknúinni taliu á sporbraut. (Ljósm. M.
Sigst.).
eða ristar eru notaðar að ein-
hverju leyti eða ekki. Þess ber að
geta að á lífrænu sauðfjárbúunum
er húsvist minni en almennt ger-
ist því að hleypa skal fénu út
daglega þegar veður leyfir eða
það er látið liggja við opið.
Girðingar
A málþinginu kom greinilega
fram að þörf fyrir girðingar er
vaxandi, m.a. vegna fækkunar
ijárbúa og annarrar landnýtingar.
Þá er víða hægt að skipuleggja
beitina betur og auka þannig hag-
Sauðburðarhús sitt hvoru megin við garða i fjárhúsinu á Lambeyrum I
Laxárdal. Heyvagn rennur ofan á garðaböndunum. í öllum stíum er
sjálfbrynning. (Ljósm. M. Sigst.).
kvæmni í búrekstri. Athyglin
beinist einkum að háspenntum
rafgirðingum, sem eru orðnar vel
þekktar hér á landi og í Noregi,
og voru flutt erindi um þá þróun.
Ahersla var lögð á rétt og vönduð
vinnubrögð við uppsetningu
þeirra til þess að þær kæmu að
tilætluðum notum við vörslu en
þó reynt að halda kostnaði í lág-
marki. í þessu sambandi var fróð-
legt að skoða nýjungar sem á að
reyna á Lambeyrum í Dölum. Þá
var m.a. sagt frá veigaminni og
ódýrari rafgirðingum sem gætu
hugsanlega hentað sums staðar á
ræktuðu landi og í hagagirðing-
um heima á íjárbúum. Fyrirtækið
LG Produkter AB í Svíþjóð hefur
m.a. mikið úrval af slíkum girð-
ingum auk ijölda margs konar
tækja og tóla til að auðvelda fjár-
búskapinn, þar á meðal veltigrind
til að létta vinnu við klaufasnyrt-
ingu.
Aukið samstarf
InterNorden og NJF
A þessu málþingi var í fyrsta
skipti gerð tilraun til að koma á
virkri samvinnu á milli Inter-
Norden og NJF. Sú tilraun þótti
takast vel. Þá var aðstaðan í
Reykholti til fyrirmyndar og við
fengum alls staðar góðar mót-
tökur í kynnisferðum okkar.
Málþingsgestir fengu möppur
með yfirlitum allra erinda og
veggspjalda en ráðgert er að
gefa allt efnið út á prenti. Mest
af því er á ensku. Stjóm Inter-
Norden notaði tækifærið til að
halda fund þar sem Erling Skur-
dal, Noregi, voru þökkuð góð
störf sem ritari og í hans stað
var kjörin Gun Bemes, Svíþjóð,
en þar í landi verður næsta mál-
þing haldið sumarið 2004. Þá
var samþykkt að stjóm Inter-
Norden skuli framvegis annast
málefni sauðfjárræktar innan
Búfjárræktarskorar NJF.
| 32 - Freyr 7/2002