Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.2002, Qupperneq 36

Freyr - 01.08.2002, Qupperneq 36
Æðarhús - irmimynd. Ljósm. Árni Snæbjörnsson. sé hey eöa annað efni. Söfnun og þurrkun þangs fyrir æðarfugl var/er eitt af vorverkunum. í út- Norsk dúngrind með tveim strengjalögum. Dúnninn er settur á milli þeirra til hreinsunar. Ljósm. Árni Snæbjörnsson. eyjum er oft minna um náttúrlegt skjól eða afdrep miðað við það sem hér þekkist og gróður var gjömýttur til beitar eða slægna. Hreiðurgerð er algeng og ekki hvað síst gerð einstaklingshúsa úr tiltæku efni (grjóti/timbri). Sér- staklega kom þó á óvart að göm- ul hefð er fyrir því að byggja æð- arhús, jafnvel manngeng, hafa hurð eða hlera til þess að komast inn í þau en skilja eftir lítil op fyrir æðarfúglinn til þess að skríða inn um. Þurrt þang var borið inn í húsin snemma vors en hverju húsi er rými fyrir allt að 15-20 hreiður. Hús þessi vom ýmist innan um önnur hús á eyj- unum eða dreifð um svæðið. Með tilkomu minksins kom í ljós að hann á enn auðveldar með að strádrepa æðarfuglinn inni í hús- unum. Þótt reynsla af notkun þeirra hafi lengstum verið sér- staklega góð kemur annað í ljós með tilkomu minksins ef ekki tekst að halda honum frá. Víða var það viðtekin venja að hvolfa gömlum bátum á heppilegan stað og nota sem æðarhús. Dúnninn er tekinn við útleiðslu, sólþurrkaður og handhristur. Síðan er hann handhreinsaður á dúngrind. Hún er frábmgðin þeirri íslensku að því leyti að dúnninn er lagður á milli tveggja strengjalaga og með því að strjúka strengina með hræl kemur titringur á þá þannig að mslið fer úr. Þar sem dúntekja hvers bónda er orðin sáralítill ráða þeir vel við að hreinsa hver fyrir sig. Dúninn selja þeir mest á heimamarkaði og margir búa til sængur og selja. Æðarsafnið I Vega hefúr verið komið upp safni um æðarfugl og æðarrækt fyrr og nú í Vega skerjagarðinum. Það er í gömlu verslunarhúsi frá 1890 sem stendur við fiskihöfni- na í Nes, en í því var verslað til ársins 1964. Á síðari ámm hefur það verið gert upp til þessara nota. Húsið sjálft, saga þess og öll umgjörð, hjálpa mjög við að skapa það sérstæða andrúmsloft sem þama ríkir. Lögð er áhersla á að rekja hefðir við dúntekju fyrr á tímum og umgengni við fúgl- inn, en hann var um aldir hluti af lífi og búskaparháttum eyjar- skeggja. Reynt er að skapa það andrúmsloft sem áður tíðkaðist við æðarbúskapinn og sýnd em vinnubrögð við meðferð og hreinsun æðardúns. Auk þess að sýna æðarhús, fúgla, hreiður og ýmsa muni, þá er á safninu mikið af myndum, bæði af fúgli og mannlífi í skeijagarðinum. Mikið er lagt upp úr upplýsandi og að- gengilegum texta með öllu sem sýnt er. Gamla verslunarhúsið, með sína sögu, gerir sitt til þess að allur umbúnaður í kringum safhið verður hinn skemmtileg- asti og í gömlu, „Karl 01sen“ búðinni, sem enn er með sínar uppmnalegu innréttingar, er rekin minjagripaverslun með fjölbreytt- um munum sem mjög margir tengjast æðarfugli á einhvem hátt. Það er Inga E. Næss, rithöfúnd- ur, sem mest hefúr beitt sér fyrir stofnun æðarsafnsins. Jafnframt hefur hún skrifað bók um æðar- fúglinn sem kom út í júní 2002 og heitir, „I fúgleværet. Faktabok om ærfuglen.“ Bókin er ríkulega myndskreytt og er í raun tvær bækur því að síðari hlutinn fjallar um stúlkuna Isu og æðarfúglinn og heitir „Fortellingen om Isa og Ea.“ Búskapur og útræði í ÚTEYJUM Landbúnaður og fiskveiðar hafa lengst af verið undirstöðuat- vinnuvegir eyjarskeggja. Þegar búið var í öllum byggilegum eyj- um var sjósókn undirstöðuat- | 36 - Freyr 7/2002

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.