Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.2002, Blaðsíða 38

Freyr - 01.08.2002, Blaðsíða 38
Frá gömlu fiskihöfninni í Nes á Vega eyju. Þarna má sjá gömlu verslunar- húsin og þarna var fiski landað. í einu húsanna er æðarsafnið í öðrum er gistiaðstaða og einhver standa auð og yfirgefin. Ljósm. Árni Snæbjörnsson. Byggðaþróun Allar byggilegar eyjar voru setnar fram um 1960. Upp úr því fer fólki að fækka og að lokum má segja að samfélag úteyjanna hrynji. Af þeim eyjum, sem hafa farið í eyði, var sú síðasta yfir- gefín 1982. Nú er aðeins örfáir íbúar á tveim eyjum, auk Vega, en sumarbúseta er á þeim all- flestum. Þegar byggðin var hvað blómlegust um og fyrir miðja síðustu öld voru 3.000 íbúar í Vega-eyjaklasanum, en nú eru þeir 1.400. 1 viðræðum við heimamenn kom fram að þeim fannst of lítið gert til þess að spoma við frekari byggðaröskun. Þeir sögðu það ríkjandi stefna stjómvalda að verja ekki lengur jaðarbyggðimar. Megin áhersla væri lögð á að efla helstu byggðakjamana, eins og t.d. Þrándheim í þessum landshluta, þannig að fólksflutningar af landsbyggðinni staðnæmdust þar að veralegu leyti en færi ekki allur til svæðisins kringum Osló. Þessari stefnu virtust þeir heima- menn, sem rætt var við, vera ósammála. Þó kom fram að stjómvöld jafnt sem héraðs- stjómir viðurkenndu að megin- undirstaða varðandi festu og stöðugleika í atvinnumálum dreifbýlis væri öflugur og fjöl- breyttur landbúnaður og að tryggja þyrfti afkomu hans. Hins vegar sögðust einhverjir sjá þess merki að þama væri breytinga að vænta á næstunni. Einnig viður- kenndu heimamenn að samgöng- ur væra góðar og ekki mætti vanmeta mikilvægi þeirra. Vega eyjaklasinn er bæði óhemju stór og ljölbreyttur og bera yfírgefnar byggingar og önnur mannvirki þess augljós merki að athafnalíf hefur verið mjög öflugt fyrr á tímun. Eins er náttúrafegurð rnikil og landslag fjölbreytt. Því kemur á óvart að ferðaþjónusta er afar lítil á svæðinu, jafnvel svo að ekki koma nema um 3.000 gestir á svæðið á ári hverju. Skýring heimamanna á því var sú að framkvæði og framtak á þessu sviði hafí vantað hjá heimamönnum og stjómvöld hefðu ekki verið sérlega hvetj- andi á þessu sviði. Skýrt var tek- ið fram að ferðaþjónusta væri öflug víða annar staðar, eins og t.d. í Lofoten. Menningararfleifðin Norska umhverfisráðuneytið hefur hafíð undirbúning að því að tilnefna Vega-skeijagarðinn á heimslista UNESCO sem sér- Bændabýli á Vega. Ljósm. Árni Snæbjörnsson. | 38 - Freyr 7/2002

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.