Freyr - 01.09.2002, Blaðsíða 14
Fetta kjðtlð spllllr Unda-
Uötsmarkaðnum
Viðtal við Steinþór Skúlason, forstjóra Sláturfélags Suðurlands.
Fáir munu kunnugri sölu- og
markaðsmálum kindakjöts
hér á landi en Steinþór Skúla-
son, forstjóri SS. Freyr leitaði
því á fund hans til að fræðast
um stöðu þeirra mála um þess-
ar mundir.
Hver er hlutur SS í sauðfjár-
slátruninni núna?
Við vorum sl. haust, 2001, með
um ljórðung af sauðfjárslátrun
landsins, í þremur húsum; á Sel-
fossi, Kirkjubæjarklaustri og við
Laxá í Leirár- og Melasveit.
Það hefur gerst síðustu árin að
nýtingartími þessara húsa hefur
lengst, einkum í Selfosshúsinu.
Þar slátruðum við í fyrra liðlega
90 þúsund fjár.
Það sem ég hef séð í sauðfjár-
slátruninni undanfarin ár er að af-
köstin, þ.e. kg kjöts á vinnustund,
eru ekki að breytast mikið. Það
var að vísu fleira fólk hér áður
fyrr með því verklagi sem þá
ríkti. A móti eru hins vegar
kornnar meiri gæðakröfur, þ.e.
einkum um hreinlæti og snyrt-
ingu, og þær krefjast meira
vinnuafls en áður.
Er þessu öðruvísi farið en við
aðra slátrun?
Já, ég get nefnt sem dæmi að
fyrir um 15 árum þá slátraði SS
stórgripum í fjórum húsum; : á
Selfossi, Hvolsvelli, Vík í Mýr-
dal og á Kirkjubæjarklaustri. Nú
er slátrað á einum stað, Selfossi,
og kjöt af stórgripum hefur aukist
gríðarlega mikið, þannig að þar
hefur orðið mjög mikil lækkun á
kostnaði, þ.e. fleiri kg kjöts á
vinnustund. Ástæðan er sú að
stórgripaslátrun fer fram árið um
kring, nánast hvem virkan dag.
Þar em því atvinnumenn að störf-
um og öll vélvæðing hefúr aukist
verulega. Mest munar þó um
verkþjálfúnina. Gæðakröfumar
em aftur hinar sömu við alla
slátmn.
í sauðfjárslátruninni er hins
vegar um 30-50% nýtt starfsfólk
á hverju hausti og aðaltömin
stendur aðeins í sex vikur. Helm-
ingurinn af þeim tíma fer í það
að ná upp vinnuafköstunum.
Hversu stór er hlutur kinda-
kjöts af heildarslátrun SS?
í fyrra var kindakjötið tæpur
helmingur af kjötmagni eða 2208
tonn en 2668 tonn af öðm kjöti.
Hlutfall kindakjötsins hefúr farið
minnkandi síðustu ár, einkum
vegna mikillar aukningar á naut-
gripa- og hrossaslátmn. Magn
svínakjöts hjá okkur hefúr
nokkuð haldist i horfinu.
Fjárflutningabíll frá SS. Fyrir aftan sláturhús félagsins á Selfossi. (Ljósm.
Bændablaðið).
Sérðu fram á breytingar og
aukna hagrœðingu i
sauðfjárslátrun hjá SS?
Eg held að við munum reka
áfram þessi þijú sauðfjársláturhús
okkar. Tvö þeirra, við Laxá og á
Klaustri, em verðlausar eignir ef
það er ekki slátrað í þeim. Síðan
hefúr okkur vantað kjöt í vinnsl-
una og þá er hagkvæmast að nota
okkar eigið kjöt.
Almennt talað þá held ég að
langtímaþróunin í þessum efnum
verði sú að það verði færri en
stærri sauðfjársláturhús sem rekin
| 14-Freyr 8/2002