Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2002, Blaðsíða 18

Freyr - 01.09.2002, Blaðsíða 18
Nlðurstöður úr skýrslum f|ár- ræktarfélaganna árlð 2001 Hér verður fram haldið frá síðasta ári með að gera grein fyrir niðurstöðum úr skýrsluhaldi fjárræktarfélag- anna innan árs frá því að skýrsluári lýkur, þó að vitað sé að ólokið sé uppgjöri á allmörgum skýrslum frá haustinu 2001, sem höfðu ekki enn borist til uppgjörs í byrjun september 2002. Niðurstöður eru hér kynntar og birtar á sama formi og gert hefur verið undanfarin ár. Þetta er gert að ráðnum hug vegna þess að eitt mikilvægasta hlutverk þessa yfír- lits er að vera örugg töluleg heimild fyrir þá sem hugsanlega þurfa að nýta niðurstöðumar á komandi árum. Við slíka vinnu er mjög mikilsvert að geta treyst því að tölulegar niðurstöður séu að öllu leyti sambærilegar frá ári til árs. Þetta er líka ein meginástæða þess að allar upplýsingar um kjötmagn í þessum skýrslum em enn miðaðar við blautvigt. Það heíur verið gmnnur skýrsluhalds- ins síðustu tvo áratugina og var hið almenna form á kjötvigt sem bændur fengu úr sláturhúsi fyrir einum áratug, þó að núorðið sé þurrvigt að verða ríkjandi í slik- um upplýsingum. Nú er verið að vinna að heildar- endurskoðun á skýrsluhaldskerfi sauðfjárræktarinnar en ljóst er að það verður í fyrsta lagi með nið- urstöðum fyrir árið 2003 sem það kerfi mun verða tekið í notkun. Góðu heilli hefur aukist veru- lega að bændur færi skýrsluhald sitt í Fjárvísi og gögnin komið þannig fullunnin til uppgjörs hjá okkur. Láta mun nærri að fast að helmingur upplýsinga fyrir árið 2001 hafi komið á þann hátt til uppgjörs. Þessi breyting er að öllu leyti mjög jákvæð. Ljóst er að þegar bændur vinna skýrslu- haldið sjálfir til fullnustu á þenn- an hátt batnar vinnsla og gæði gagna aukast enn. Helstu fjölda- og meðaltalstölur fyrir einstök félög er að finna í töflu 1 sem er með sama formi og verið hefur undanfarin ár. Þama er að finna tölur fyrir 133 félög, sem em hin sömu og árið áður. Frávikið er það að félag sem á síðasta ári birtist sem „Norður- Þingeyinga“ hefur fallið út. Þama var um að ræða skýrsluhald aðila sem óskað hafði að standa utan fjárræktarfélaganna. Með tilkomu gæðastýringar hefur verið kveðið á um að mögulegt skuli vera að fá uppgjör fjárræktarfélaganna þó að viðkomandi starfi þar ekki. Örfá slík bú hafa komið með í skýrslu- haldið á síðasta ári. Þessi bú koma hvergi fram í þessum töflu nema í landsmeðaltali. Þess vegna mundu einhverjir uppgötva, ef þeir tækju sig til að leggja saman dálka um fjöldatölur, að landstöl- umar stemma ekki við það sem taflan sýnir. Skýringin er þessi. Breyting þessi sýnist mér að geti tæplega talist mjög æskileg. Gæðastýringin er tvímælalaust ætluð til að efla faglega stöðu sauðfjárræktarinnar. Ég held að það þurfi vart að vera nokkurt vafamál að með starfi í félögun- um eiga allir bændur að geta sótt þangað ákveðinn faglegan styrk, umfram það að standa utan þeir- rar starfsemi. Það hlýtur ætíð að efla hvem og einn að taka þátt í virku starfí. Tvær nafnabreytingar em á starfandi félögum sem rétt er að vekja athygli á. Sf. Þorkelshóls- hrepps hefúr lagt af það nafh (enda heyrir hreppurinn sögunni til) og nefnist nú Sf. Víðdælinga. Þá hafa félögin tvö sem áður vom í Akrahreppi, Sf. Kári og Sf. Frosti verið sameinuð og fékk hið nýja félag nafnið Sf. Akrahrepps. Uppgjör þetta nær til 1089 (1025) búa, sem er umtalsverð fjölgun frá árinu áður og einhver sú mesta sem nokkm sinni hefúr orðið á félögunum. í greininni em svigatölur ætíð sambærilegar tölur úr uppgjöri frá haustinu 2000. Fullorðnar ær í uppgjörinu em 198.160 (179.346), en þær vet- urgömlu 39.625 (38.253). Skýrslufærðar ær samtals em því 237.785 (217.599). Fjölgun á milli ára er því um rúmlega 20 þúsund ær. Þetta er mesta fjölgun sem nokkm sinni hefúr orðið á skýrslufærðum ám og hlýtur að sjálfsögðu að vera mjög jákvæð þróun. Það getur tæpast lengur verið neitt álitamál að skipulegt skýrsluhald er einn þáttur i fag- lega virkum sauðfjárbúskap. Að sjálfsögðu batnar búskapur ekkert við það að féð sé skýrslufært. Hins vegar er skipuleg upplýs- | 18-Freyr 8/2002
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.