Freyr - 01.09.2002, Blaðsíða 49
Arfi 99-873 er hrútur sem sameinar mikla kosti i lítilli fitu og góðri gerð.
reyndar allt aðrar niðurstöður en
þær einkunnir sem yfirleitt eru
notaðar í fjárræktaruppgjöri hér
á landi en það byggist undan-
tekningarlaust á samanburði
innan búsins. Þetta er hægt að
gera vegna hinna víðtæku notk-
unar á sæðingum í sauðfjárrækt
hér á landi. Þannig verða í
gögnunum gífurlega stórir af-
kvæmahópar undan þessum
hrútum dreifðir á íjölda búa.
Auk þess samanstendur hrúta-
hópurinn í landinu orðið af
mjög stórum hálfbræðrahópum
undan stöðvarhrútum. Þannig
myndast mjög góðar tengingar á
milli búanna. Þar til viðbótar
kemur fé sem selt er til lífs á
milli búa.
Astæða er til þess að leggja á
það áherslu að enn eru miklir
möguleikar á að bæta þann
gagnagrunn sem verið er að
vinna með í sauðijárræktinni,
með því að styrkja þann ættar-
grunn sem þar er fyrir hendi.
Þar er gífurlegt magn upplýs-
inga sem hefur ekki komist til
skila, einkum um sölufé. Allir,
sem slíkar upplýsingar eiga, eru
hvattir til að koma þeim á fram-
færi.
Annað atriði, sem útreikningar
sem þessir taka tillit til og
ástæða er til að nefna, er valpör-
un. Þetta er atriði sem áreiðan-
lega er í mörgum tilvikum að
trufla niðurstöður í samanburði
innan búa meira en menn hafa
gert sér grein fyrir. Þetta þekkja
hins vegar flestir íjárbændur
mjög vel. I mörgum tilvikum er
ekki um neitt markvisst val að
ræða heldur þætti sem skapast af
aðstæðum á búinu. Þar má
benda á þætti eins og val með
tilliti til skyldleika gripa innan
búsins. Oft eru sóttir óskyldir
hrútar sem notaðir eru á þá
dætrahópa sem skyldastir eru
heimahrútunum. Einnig er það
vel þekkt að val undir hrúta á
sér mjög oft stað með tilliti til
aldurs ánna, þetta er allra best
þekkt víða með gemlingana og
tvævetlumar. Þessu til viðbótar
kemur síðan að oft er markvisst
valið undir tiltekna hrúta.
Hér með greininni fylgja
ÁII 00-868 gefur mjög litla fitusöfnun hjá afkvæmum sínum en um leið
ágæta gerð.
Freyr 8/2002 - 49 |