Skátablaðið - 01.12.1959, Side 33
og eitra að meira eða minna leyti alla lífs-
hamingju þeirra.
Það er því auðskilið mál, að það eru fyrst
og fremst unglingarnir á gelgjuskeiðinu,
sem skátahreyfingin á höfuðerindi til.
Skátahreyfingin á nú rúmlega hállrar ald-
ar starfsferil að baki sér, og mun nú engum
lengur geta blandazt hugur um, hversu
geysimikil og góð áhrif hún getur haft
í þá átt að ala meðlimi sína upp sein skyn-
samlega hugsandi og ábyrga þjóðfélags-
borgara. Skátahreyfingin á vissulega mikið
erindi til æskulýðs strax í bernsku, en að
sjálfsögðu er ekki hvað minnst undir því
komið, að hún reynist unglingunum vel, þá
er þeir þurfa ef til vill einna frekast á því
að lialda. Fjallarekkastarfsemin stefnir tví-
mælalaust að því marki að gefa unglingun-
um tækifæri til.að njóta hinnar hollu upp-
eldisáhrifa skátahreyfingarinnar út í yztu
æsar á meðan þeir eru á gelgjuskeiðinu,
og jafnframt því er þess vafalaust að vænta,
að með öflugu starfi fjallarekka verði kom-
izt að mestu eða öllu leyti fyrir þau vanda-
mál, sem flótti unglinganna á gelgjuskeið-
inu út úr félögunum hefur í för með sér.
Af fjallarekkastarfseminni mun nú feng-
in fimm ára reynsla hérlendis. Enn mun þó
vart hægt að segja annað en að hún sé að
mörgu leyti á tilraunastigi, en þó munu nú
aðeins innan vébanda Skátafélags Reykja-
víkur vera starfandi á annað hundrað fjalla-
rekkar. Starfsemi þeirra hefur gefið mjög
góða raun, yfirleitt hafa sveitir þeirra og
flokkar orðið að samhentum hópum, sem
hafa myndað kjarna deilda sinna og annazt
framkvæmd margvíslegra rnála fyrir þær.
Jafnframt hafa þeir að sjálfsögðu einnig
starfað sjálfstætt að sínum eigin hugðar-
efnum, jafnt skátaprófum sem útilegum og
ýmsum öðrum skátastörfum.
Enn sem komið er mun ekki vera neins
staðar um öflugt fjallarekkastarf að ræða
utan Reykjavíkur, enda mun hið mikla
blómaskeið, sem Skátafélag Reykjavíkur
stendur nú á, eiga að meira eða minna leyli
rót sína að rekja þangað. Starf þessara fjalla-
rekka mun þó vægast sagt vera lieldur laust
í reipunum, enda vart á öðru von, þar sem
foringjar þeirra hafa varla á nokkru öðru
að byggja en eigin liugmyndum. Samt sem
áður eru starfandi nokkrar öflugar fjalla-
rekkasveitir í Reykjavík, en þó þær starfi
mjög fjörlega, þá er alltaf áberandi, hversu
vötnunin á föstum skipulagsgrundvelli er
þeim mikill fjötur um fót. Sérstaklega er
þó áberandi vöntun á handhægum bókum
og bæklingum um þessi mál, sem foringjar
fjallarekka geti sótt til fræðslu og þekkingu
á hinu daglega starfi. Einnig er aðkallandi
að veita fjallarekkum sérstök einkenni í lík-
ingu við liina eiginlegu rekka, og afnenia
hið fyrsta liina mórauðu axlaspæla með
hinni ensku áletrun „Senior Scouts", sem
fyrir einhvern misskilning virðast hafa ver-
ið fluttir inn frá Stóra-Bretlandi og eru
seldir í Skátabúðinni, og munu nokkuð al-
mennt vera notaðir af fjallarekkum.
Margt fleira mætti tína til í þessu sam-
bandi, enda verður öllu starfi fjallarekka
ekki gert skil svo fullnægjandi sé í einni
stuttri blaðagrein. Hins vegar er tilgangur
minn með hugvekju þessari sá, að auka
mönnum skilning á hinu raunverulega eðli
SKÁTABLAÐIÐ
91