Skátablaðið


Skátablaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 11

Skátablaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 11
■ Vinna í samvinnu viö fjölmiðla að þætti sem gæti heitið „svona er að vera ungur“. Taka viðtöl við ungt fólk, athuga tónlistarsmekk og annað í fari þeirra. Taka viðtöl við eldra fólk og ræða um æsku þeirra. ■ Skella sér á námskeið í skyndi- hjálp, fjallamennsku og björgun- arstörfum. ■ Komast að einhverju deilu/á- greiningsmáli í bænum. Fylgjast með framgangi þess í blöðum, bæjarfundum og á öðrum stöðum þar sem þau ber á góma. Finna út staðreyndir og rök á báða bóga og ræða í hóp með vinum og skátum. ■ Heimsækja a.m.k. 2 bæjar- stofnanir og kynnast starfsemi þeirra. FRIÐUR Friður er grundvallarþáttur lífs okkar og framtíðar. Alþjóðaár æskunnar mun hjálpa okkur að uppgötva nýja möguleika ungs fólks til að tryggja frið milli okkar sem einstaklinga, þjóðfélags- þegna og milli þjóða heims. Möguleika á friði þarf að efla með því að auka skilning og samvinnu ungs fólks. Andi friðar hefst hjá okkur sjálfum, mér og þér. Hver er til dæmis staða þín gagnvart fjölskyldu, vinum, kunningjum og nágrönnum eða í umferðinni, búðinni, vinnunni, skólanum og á skemmtistöðum. ■ Fá hjálp og hafa samband við stofnanir svo sem, UNISEF, Norrænafélagið, Hjálparstofnun Kirkjunnar, Amnesti Interna- tiona! og fleiri. Hvert er þeirra framlag til alþjóðaskilnings, sam- vinnu og friðar. Hafa þær ráð til lausnar, hjálpar eða úrbóta á vandamálum heimsins? Ræðið þetta á hópfundi. ■ Koma á vinasambandi við flokk, sveit, deild eða félag er- lendis eða innanlands. ■ Hlutverkaleikur - leikið dæmi- gert rifrildi t.d. foreldra og barns, fólks í biðröð, fólks í strætisvagni eða rifrildi dróttskáta um búninga- mál eða forsetamerkið. Skiptið um hlutverk og ræðið mismun- andi viðhorf. ■ Réttlátt stríð. - Er eitthvað þannig til? Ræðið málið (ath. það má örugglega finna eitthvert yfir- standandi stríð sem umræðuefni). Frá upphafi hafa verkefni skátastarfsins miðað að fræðslu um frið. Stofnandi skátahreyfingarinnar talaði oft um frið og sagði eitt sinn: Friður verður ekki tryggður með verslun og viðskiptaþörf, hernaðarbandalögum, alhliða af- vopnun, þjóðasamningum eða hernaðarótta eingöngu, nema að andi friðar sé í hugum fólksins, þetta er uppfræðsluatriði. Baden Powell 1911 ■ Halda málfund þar sem hver einstaklingur talar mjög öflugt gegn eigin skoðunum og sannfær- ingu. ■ Hvað gerir okkar þjóð til hjálpar þróunarlöndunum, mætti breyta, auka eða minnka þá aðstoð? ■ Safna saman í lítið hefti hug- leiðingum og tilvitnunum um frið, til lesningar við ýmis hátíðleg tækifæri. ■ Gera klippimynd veggskreyt- ingu eða ljósmyndasýningu um frið. ■ Athuga nánar, sem einstakl- ingur eða í hóp merkingu orða eins og ást, væntumþykja, róm- antík, hrifning, vinátta og góðgerð. ■ Gera plakat eða bækling um frið, nota tilvitnanir í Gandhi, Martin Luther King, Baden Pow- ell og fleiri. skAtablaðið 11

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.