Skátablaðið - 01.02.1985, Síða 36
FLÆIRA ÞARF I DANSINN
EN FAGRA SKÓ
eftir Helga Grímsson
Ef athöfn eða starf á aö skila árangri veröur það að hafa
markmið. Það má skýra orðið markmið með því að segja
að athöfn eða starf á að miða að fyrirfram tilsettu marki.
Við setjum oftast markmið ómeðvitað því orð eins og t.d.
ætla, skal, mun; segja að við höfum eitthvað markmið í
huga. En ef raunsætt endurmat á að fara fram á athöfn eða
starfí verður skýrt og skilgreint markmið að liggja fyrir í
upphafí.
Markmið eru misjöfn og einnig
er óvíst hvort það markmið náist
sem í upphafi er sett. Kennari
getur haft það markmið áður en
hann gengur inn í kennslustofu að
kenna nemendum það sem stend-
ur á bls. 15-20 í líffræðinni. Nem-
andi sem er að fara í líffræðitím-
ann getur haft það að markmiði
að læra það sem kennarinn ætlar
að kenna. Annar gæti haft það
markmið að trufla kennslu, sá
þriðji að sofa allan tímann og sá
fjórðu að vera inni í stofunni
þangað til hringt er út.
Til að ná markmiði þarf að fara
eftir einhverjum leiðum og eru
þær misvænlegar til árangurs.
Oftast geta menn valið um fjöl-
margar leiðir. Það eru t.d. margar
aðferðir til kennslu eða truflunar
á kennslustund. Ef kennari
ákveður að kenna líffræðina
þannig að hann lesi blaðsíðurnar
hægt og skýrt í huganum er óvíst
hvort nemandinn læri námsefnið.
Ef nemandi ætlar að trufla
kennslu og velur þá leið að sitja
kyrr og steinþegja er ólíklegt að
markmiðið náist. Til að ná settu
marki verður því að velja leiðina
að markinu gaumgæfilega.
Lögfest markmið
og leiðir BÍS
Við skulum aðeins líta á hvað
segir um markmið og leiðir í
lögum Bandalags íslenskra skáta
(greinar 1.2 og 1.3):
Markmið skátastarfs er að
þroska börn og ungt fólk til að
verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir
einstaklingar í samfélaginu.
Markmiði skátastarfsins hyggst
Bandalagið m.a. ná þannig:
- Með hópvinnu til að þroska
samstarfshæfileika og tillitssemi.
- Með útilífi til að efla líkams-
þrek og vekja áhuga á náttúrunni
og löngun til að vernda hana.
- Með viðfangsefnum af ýmsu
tagi til að kenna skátum ýmis
störf nytsöm sjálfum þeim og
öðrum.
- Með þátttöku í alþjóðastarfi
skátahreyfingarinnar til að gefa
skátum tækifæri til að kynnast
ungu fólki í öðrum löndum, hátt-
um þess og menningu.
Þetta markmið tel ég vera ákaf-
lega loðið og teygjanlegt. Ber það
ekki vott um mikið sjálfstæði ef
maður bruggar áfengan bjór eða
svíkur undan skatti? Var Hitler
ekki mjög virkur og ábyrgur ein-
staklingur í Nazistaflokknum?
Þetta markmið er ákaflega há-
leitt, en það er ekki hægt að festa
hendur á því og meta árangurinn.
Eg minnist þess ekki að ég hafi
gengið inn á fund á foringjaárum
mínum (14-21 árs) og hugsað með
mér: „Á þessum fundi ætla ég að
gera það sem í mínu valdi stendur
til að þroska skátana til að verða
sjálfstæðir, virkir og ábyrgir ein-
staklingar í samfélaginu“. Ég leyfi
mér að halda því fram að slíkt
geri enginn og að samfélagið geti
ekki lagt þá skyldu á herðar 14-18
ára unglings (algengasti foringja-
aldurinn) að hann þroski skátana
sína til þessara þátta. Að framan-
sögðu má sjá að óframkvæman-
legt er að miða daglegt skátastarf
út frá þessum markmiðum án þess
að maður finni upp heilmörg
36 SKÁTABUÐIÐ