Skátablaðið


Skátablaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 42

Skátablaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 42
Þar rifum við okkur úr hverri spjör og tókum sprettinn í laugina ljúfu. Þar var legið í tæpa 2 tíma og slappað af. Það reyndist hins vegar vera hið mesta hetjuverk að fara upp úr því kominn var austan skafrenningur og enginn hafði svo mikið sem sandala til að skýla sér þessa 30 metra í skálann. Eftir þetta hressilega bað var tekið til við að elda veislumat kvöldsins og var þá ekki amalegt að hafa kokk frá hótel KEA með í ferðinni. Enda kom það glögglega í ljós þegar borin var fram þessi dýrind- ismáltíð: Hangikjöt með grænum baunum, kjötbollur með stöppu og sósu og svo kokkteilávextir og kakó í eftirmat. í tilefni af þessu var sunginn alveg nýr borðsálm- ur: Bjart er yfir Betlehem. Á milli rétta skemmti Gunnar Þór veislu- gestum með spilagöldrum. Á eftir sögðum við hvor öðrum lyga- sögur, dáðumst að kvöldsólinni og átum piparkökur. Síðan var haldið upp á loft í pokana. Peysuprjón úr fjallhífínni Á þriðjudagsmorgun var vaknað snemma því framundan var 32 km ganga með mun meiri þunga en áður því í Laugafelli bættist á okkur sá matur og olía sem átti að endast suður yfir Kjöl. Þó var það ekki fyrr en um 11:30 sem lagt var af stað. Fyrst í stað reyndum við að nota fjallhífar en hættum því fljótlega því að bæði var erfitt að sigla þvert á vind- stefnuna og einnig skall fljótlega á okkur hríð og var því hætta á að týna stefnunni og eins hvor öðrum. Um tvöleytið rofaði aðeins til og sáum við þá að okkur hafði miðað frekar hægt. Þá var ákveðið að reyna fjallhífarnar aftur en frekar gekk mönnum misjafnlega við það, t.d. var undirritaður með svo flækta fjall- híf að menn héldu að ég hefði ætl- að að prjóna peysu úr böndunum. Rétt grillir í skíðaoddana Svo var því hætt endanlega þegar slyddan var orðin þannig að rétt grillti í skíðaoddana í fjarska. Um kl. 5 komum við að Illviðrahnjúk- um og þá bar svo við að skyndi- lega kom sólskin og logn. í tilefni af því hituðum við kakó og feng- um okkur snæðing. Síðan var labbað áfram í góða veðrinu til kl. 7 en þá var tekin veðurfregna- pása. Þá var talstöðin opnuð en ákveðið hafði verið að hafa hana opna 15 mínútur á eftir veður- fregnum. Okkur til mikillar furðu heyrðist skyndilega í félaga okkar og talstöðvamanni á Akureyri, Sveinbirni Dúasyni, en hann var staddur í flugvél yfir Hrísey í Eyjafirði um 150 km í burtu. Eftir smá rabb var beðið fyrir kveðju heim og síðan haldið áfram. Góða veðrið virtist ætla að haldast og allir voru í miklu göngu- stuði. Um kl. 9 vorum við sunnan við Ásbjarnarhnjúk og þar var elduð súpa og prófaðar rúsínur. Sjénsinn tekinn á svörtustu þústina Áfram var haldið með stefnuna rétt sunnan við Ásbjarnarfell og vorum við ákveðnir í að ná í Ing- ólfsskála, skála Ferðafélags Skag- firðinga, um kvöldið. Þegar við komum að Lambahrauni var næstum komið svartamyrkur. Enginn okkar hafði komið þarna áður og vissum við því ekki ná- kvæmlega hvar skálinn var og ekki var hann merktur inn á kort. Þá var tekið það ráð að velja svörtustu þústina og prófa. Síðan var arkað yfir hraunið og eftir svo sem hálftíma göngu fór að grilla í hraunröndina hinum megin. Og heldur urðum við hissa og glaðir þegar við sáum að þústin reyndist vera skálinn. Þótti okkur þetta vera mikil heppni enda var klukk- an orðin 11:30 og komið svarta myrkur. Við drifum okkur inn og elduðum, aldrei þessu vant, þenn- an fína kvöldmat og síðan var lagst til svefns. I þessum tóma skála sváfum við til kl. 10 á mið- vikudagsmorgun. Skíði brotið og göngustafur í stíl Það var varla að við tímdum að yfirgefa þetta góða hús og það var ekki fyrr en kl. 3 að við lögðum af stað í góðu veðri, hálfskýjað með smá austangolu. Fyrst í stað voru dálitlir áburðarerfiðleikar en það lagaðist fljótlega. Gengum við framhjá Krókafelli með stefnuna á Eyfirðingahóla. Þar virtist vind- 42 SKÁTABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.