Skátablaðið


Skátablaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 43

Skátablaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 43
áttin snúast úr austan í suðvestan og var nú aðeins gengið eftir átta- vita, þar sem engin kennileiti sáust í vestri en í suðri blasti Hofs- jökull við og fjallið Sáta. Um kl. 9 á miðvikudagskvöld komum við að djúpu gili sem við töldum vera Ströngukvísl. Áin var auð á smá kafla. Parna ákváðum við að hafa náttstað því það munar miklu að þurfa ekki að bræða snjó til matargerðar. Það er líka gott að hafa aðgang að nægu vatni því að í þessum ferðum er það mikið vökvatap að maður er stanslaust þambandi vatn og uppþvottavatn- ið drekkur maður með góðri lyst ef ekki er um annað að ræða. Þeg- ar var verið að tjalda kom í ljós að eitt skíðið var brotið og hékk aðeins saman á stálköntunum. Þetta var slæm uppgötvun því það er erfitt að ösla snjóinn fótgang- andi. Þetta var að vísu ekki fyrsta óhappið því skömmu áður hafði brotnað einn skíðastafur. Hann var að vísu ekki sá síðasti því samtals brotnuðu 4 stafir í ferð- inni. Þarna náðum við fyrst í Blöndudalshópinn gegnum tal- stöð og fréttum um vandræði þeirra vegna botnlangakasts. í kvöldmat fengum við niðursoðna ýsu og súpu og síðan var haldið í tjöld. Á miðnætti óskuðum við hvor öðrum gleðilegs sumars og síðan var sofnað út frá rás 2. Dúfunefsfellið hörfar undan Skírdagur rann upp eins og ekkert hefði í skorist. Við vökn- uðum kl. 8 og vorum fljótir að háma í okkur grautinn og pakka tjöldunum. Þá var komið að því að leysa vandamál brotna skíðis- ins. Við ákváðum að færa bind- inguna á skíðinu framar og sjá til hversu lengi skíðið myndi lafa saman. Það reyndist lafa alla ferð- ina. Þennan dag var heiðskírt og fjallasýn í allar áttir: Langjökull í vestri, Hrútfell og Kjalfell og Hofsjökull í suðri og Mælifells- hnjúkur í Skagafirði í norðri. Við ákváðum að stefna rétt sunnan við Dúfunefsfell. Okkur miðaði mjög hratt áfram en okkur fannst þó Dúfunefsfellið hörfa óþarflega hratt undan, svona af fjalli að vera. Um kl. 3 náðum við því loksins. Síðustu kílómetrarnir að Hveravöllum voru seinfarnir vegna eldsneytisskorts en allt hafðist þetta þó. Á Hveravöllum hittum við fé- laga okkar og urðu þar fagnaðar- fundir. Svo fórum við í bað og sögðum frægðarsögur af sjálfum okkur. Á föstudaginn langa skildu svo leiðir; Manni fór norður í Blöndudal ásamt 14 akureyrskum skátum en við hinir héldum suður Kjöl ásamt reykvískum skátum. Nú þegar þig er farið að klæja í skíðabotnana er gott fyrir þig að vita að ISHÆK ’85 verður um páskana. Leiðin sem verðurfarin að þessu sinni er frá Húsavík um Þeystareyki að Kröflu. Nýjustu fréttir herma að á Reykjaheiði sé allt hvítt. Þessi ferð er ætluð fyrir alla skáta sem eru orðnir 15 ára eða verða það á árinu. Nauðsynlegt er að hafa reynslu í vetrarferðum á skíðum eða hafa áhuga á að öölast slíka reynslu. Ferðin stendur yfir frá 31. mars til 5. apríl og að auki verður boðið upp á áframhald fyrir hina vanari en það erferð um Mývatnsöræfi. Sú ferð stendur til 8. apríl. Ef þú ert forvitnin uppmáluð (peinted blú) þá geturðu hringt í okkur við og við ne við erum: Kalli (sími 96-25969), Marri JR (sími 96-21132) og Manni (sími 91-35160). Tvístígir þú um of getur það orðiö of seint að sækja um því umsóknarfresturinn rennur út nú um mánaðarmót (febrúar/mars). SKÁTABLAÐIÐ 43

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.