Skátablaðið - 01.04.1994, Qupperneq 11
Bajkalvatn
Kazakhstan
Aralvatn Kirgísthan
Úzbekistan TAJÍKISTAN Kína
Túrkmenistan "• Dushanbe
Pakistan
Afghanistan
enu (Aíá<z 4weétaucU (foutr í
áeímíuum — m&ify feecnna enu eá&i
eúte ícittyt ýiá fíén oy feú áeídun!
Friðarpakkar
Alheimssamtök skáta hafa ákveðið að
komabörnunum til hjálpar með því að sjá
þeim fyrir hreinlætisvörum, ritföngum til
náms og nærfatnaði. Börnin sem fá
pakkana eru á aldrinum 5-15 ára, bæði
strákar og stelpur. Athuga skal að miða
mnihald pakkanna við aldur og kyn þess
sem á að taka við honum.
s
Ifríðarpakkanum
á að vera:
3 stílabækur
2 blýantar
2 kúlupennar
1 pakki vaxlitir
1 yddari
1 strokleður
1 reglustika
1 tannbursti
1 tannkremstúpa
1 sápa
1 gróftennt greiða
2 nýjar nærbuxur fyrir dreng eða
stúlku
1 nýr T-bolur
1 nýtt leikfang, t.d. sippuband, bolti
eða svifdiskur (ekki senda leikföng
sem þarfnast leiðbeininga eða raf-
hlaðna)
1 lítil myndabók
Gleymum ekki að senda kveðju frá
skátanum sem safnaði í pokann. Kveðjan
getur verið mynd, teikning eða eitthvað
þess háttar. Allt þetta skal setja í glæran
plastpoka með þar til gerðum miða þar
sem tekið er fram, hverjum pakkinn er
ætlaður, þ.e. kyn og aldur.
Pökkunum berað skila til sveitarforingja
eða á skrifstofu BIS fyrir 1. maí n.k.
Ekki senda neitt matarkyns, hvorki
sælgæti né annað!
Nú er komið að okkur að sýna hvað í
okkur býr, við sem eigum meira getum
gefið þeim sem minna eiga. Það er tilvalin
sumargjöf að gefa flóttabarni friðarpakka
í ár.
Undirbúningur átaksins er undir stjórn
alþjóðaráðs BÍS.
Akademíuverðlaun skáta
afhent fyrir stuttu
Akademía skáta hófveitingu verðlauna sinna fyrir
tveimur árum. Framtak þetta hefur vakið verðskuldaða
athygli og verið mikil hvatning í starfi. Verðlaunin voru
veitt á Árshátíð skáta sem haldin var 12. mars sl.
Verðlaunin eru innrammað skjal
asamt listaverki sem sérstaklega er
gert f tilefni afhendingarinnar.
Landsbjörg er styrktaraðili Akademíu
skáta.
Afhendingin er árviss og víst að
félög eru þegar farin að stefna að því
nð fá þessa eftirsóttu viðurkenningu á
næsta ári þó svo ekki sé hægt að vinna
beint að þeim því Akademía skáta
hefur alveg frjálsar hendur með það,
fyrir hvað þau eru veitt.
Eftirtaldir aðilar hlutu verðlaunin:
Kristín Bjarnadóttir, fyrir Skáta-
handbókina, vandaða og metnaðarfulla
staðfœringu á erlendri bók.
Hraunbúar. fyrir góð tengsl við
almenning í sínu bœjarfélagi með
gönguferðum og tívolíhátíðinni „Mars-
búanum“
Skjöldungar, fyrirfrumkvœði í nýtingu
tölvutœkni til þess að mynda ný tengsl
milli skáta, innanlands og milli landa.
Strókur, fyrir góðan árangur við að
virkja foreldra til stuðnings og eflingar
skátastarfs í Hveragerði.
Tœknilið Landsmóts 1993, fyrir að
sýna að þeir voru viðbúnirþegar kuldi og
regn hrjáði landsmótsgesti.
Skátablaðið