Skátablaðið - 01.04.1994, Page 22
er rétt að benda á að á mótinu verða reknar
minjagripaverslanir, sjoppur, pósthús og
fleira slíkt. Auk þess er hugsanlegt að
einhver smá aukakostnaður (minjagripir,
gos o.s.frv.) verði í heimagistingunni
(homehospitality) en fjölskyldurnar sem
taka á móti hópnum sjá honum fyrir fullu
fæði.
Undirbúningur
Nú í sumar mun undirbúningur þátt-
takenda hefjast af fullum krafti. Þátt-
takendum verður skipt í flokka og sveitir
eftir landshlutum. í hverri sveit munu
starfa 36 skátar og verður sveitinni
stjórnað af fjórum sveitarforingjum og
sex flokksforingjum. Þar að auki verður
einn fararstjóri fyrir hverja fimmtán þátt-
■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■*■
takendur. Undirbúningsstarfið mun að
meginatriðum byggja á þrennu: fjár-
öflunum til að ná niður sem allra mestum
kostnaði, “móralskri” uppbyggingu á
meðal þátttakendaog fræðslu um alþjóða-
starf og skátastarf í öðrum löndum.
Undirbúnings-
nefnd
Stjórn Bandalags íslenskra skáta hefur
skipað undirbúningsnefnd til að sinna
þessurn undirbúningi íslensku skátanna.
Skátar úr þessum hópi munu síðan rnanna
fararstjórn sem mun leiða hópinn í
ferðinni. í undirbúningsnefndinni eru
allt fullorðnir, reyndir skátar, sem hafa
reynslu af alþjóðastarfi og þátttöku í
erlendum skátamótum.
Nánari upp-
lýsingar
Allar nánari upplýsingar má fá á skrif-
stofu BÍS, Snorrabraut 60 í Reykjavík, og
í síma 91 - 62 13 90.
■*■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■■■*■■■
*
í
Sveitarforingjar óskast á
Alheimsmót skáta (jamboree)
íHollandi 1995
Hver sveit á Jamboree samanstendur af 36 skátum og 4 sveitarforingjum. Undirbúningsnefnd auglýsir hér með eftir
umsóknum um stöðu sveitarforingja þessara sveita. Úr hópi umsækjenda mun undirbúningsnefnd síðar skipa 4
sveitarforingja fyrir hverja sveit, þar af einn aðalsveitarforingja. Æskilegt er að sveitarforingjar séu 25 ára eða eldri
en alls ekki yngri en tvítugir. Við leitum eftirtraustum aðilum með mikla reynslu sem eru tilbúnir í erfiða og krefjandi
vinnu tímabundið. Skilyrði er að sveitarforingjar hafi gott vald á ensku eða frönsku og jafnvel einu Norðurlandamáli.
Viðkomandi þurfa að vera reglusamir, hugmyndaríkir og drífandi. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af
alþjóðastarfi. Óskað er eftir meðmælum. Umsóknir berist skrifstofu BÍS fyrir 1. júní 1994 merkt Jamboree 1995.
Umsóknareyðublöð Iiggja frammi á skrifstofu BÍS og hjá félagsforingjum.
Dæmi um verksvið sveitarforingja:
Almenn sveitarforingjastörf, svo sem halda utan um sveitarstarfið fyrir mót
og á móti og bera ábyrgð á starfi flokka.
jóUECS
8" World Jamboroo
olland 1995
Tengiliður við fararstjórn.
Sjá um fjáraflanir sveita fyrir mót.
Undirbúningsnefnd.
■ ■ B ■ ■
Skátastarf— sjálfstæður lífsstíll