Skátablaðið - 01.04.1994, Page 25
Brábæfar viðiBbir
bað er ekki hægt að segja annað en viðtökur sem Skáta-
handbókin fékk þegar hún kom út hafi verið góðar.
Bæði skátar og almenningur hafa tekið vel á móti
bókinni enda ekki á hverjum degi sem út kemur bók
sem spannar svona vítt svið í tómstundastarfi barna. Enn
eiga eflaust margir eftir að eignast þessa glæsilegu bók
en hún er prýdd fjölda glæsilegra teikninga auk fjölda
Ijósmynda.
Það hefur lengi verið draumur manna
að gefa út vandaða skátabók sem kæmi að
notum í almennu skátastarfi. Tuttugu ár
eru liðin síðan Skátabókin kom út, en það
var glæsilegt rit með miklum fróðleik og
hentaði vel sem uppflettibók bæði fyrir
skáta sem aðra.
Skátahandbókin er í raun af allt öðrum
toga. Bókin er ætluð til notkunar úti á
akrinum, ef svo mætti segja, með mjúkri
kápu og efnið sérstaklega ætlað skátum á
hinum hefðbundna skátaaldri þar sem
efnið er sett fram með miklum fjölda
skýringamynda og í mjög samþjöppuðu
formi. Komið er inn á mikinn fjölda mála-
flokka og víst er að allir finna eitthvað
sem vekur áhuga, hvort sem um ungan
skáta eða aldinn mann er að ræða.
Bókin er að uppruna dönsk. Mikil vinna
var lögð í þýðingu bókarinnar og stað-
færingu en suma kafla þurfti að semja
alveg frá grunni. Flestar skýringar-
teikningar eru notaðar óbrey ttar en margar
staðfærðar og sumar teiknaðar upp á nýtt.
Nær allar ljósmyndir eru íslenskar svo
óhikað má segja að bókin sé orðin eins
íslensk og frekast er unnt og getum óhikað
sagt: „Islenskt —já takk“.
Bókin er seld á mjög vægu verði, aðeins
2.700 kr. og ætti það ekki að hindra neinn
sem áhuga hefur á góðum fróðleik í þ ví að
kaupa sér bókina. Bókin er seld í Skáta-
Úr Skátahandbókinni
KATAHANDB
handbókin
3
Aðetns
"ifóbto.
Hnútar og trönubyggingar
Þjóðfélagið
Eldur og matur
Hjálp í viðlögum
Leiklist
Vertu sjálfbjarga
í útilegu
►
►
►
►
►
Áferð
Tjáskipti
Skátaeinkenni
Handlagni
Kort og áttaviti
Fötlun, sjúkdómar og heilsa
Hnífur, öxi, sög og kaðlar
.. og fleiri kaflar
Fjöldi glæsilegra teíkninga og mynda prýða bókina
L
Fæst í Skátahúsinu, Skátabúðinni og fjölda bókabúða. Pöntunarsími 91 -621390
<
<
<
<
<
J
Skátablaðið