Skátablaðið - 01.04.1994, Page 39
Styrktarpirmi
Fjórða árið í röð er styrktarpinni skáta gefinn út á vegum
Bandalags íslenskra skáta. Hugmyndin að baki Styrktar-
pinnans er að ná sambandi við „gamla" skáta og færa
þá nær skátahreyfingunni undir kjörorðinu „Eitt sinn
skáti — ávallt skáti."
Framleitt er sérstakt málmmerki sem
sent er öllum gömlum skátum, 18 ára og
eldri sem til eru á skrá BÍS. Merki þetta
sem kallað er Styrktarpinni skáta er sent
öllum að kostnaðarlausu og allir hvattir
til að bera merkin hversdags. Asamt
merkinu fá menn sendan gíróseðil sem
allir eru hvattir til að greiða, en greiðslu-
stimplaður gíróseðill gildir þá sem skáta-
skírteini með öllum þeim réttindum sem
því fylgir, m.a. 10 % afsláttur í Skáta-
búðinni. Þeir sem greiða styrktarpinnann
fú sent Skátablaðið og Skátamál þannig
að þeir geta fylgst með því sem er efst á
baugi í hreyfingunni hverju sinni.
í fyrra var hönnuð fimm ára röð af
Styrktarpinnanurn. — skátahnútaröð.
Fyrsta merkið kom út í fyrra og var réttur
hnútur á því merki. I ár verður hesta-
hnúturinn á merkinu. Að öðrum leiti
verður merkið eins, úr sama efni, í sömu
stærð og lögun. Hér er því um safngrip að
ræða þegar fram líða stundir. Stefnt er að
því að haf útkomutíma Styrktarpinnans í
maí á þessu ári en nálægt 22. febrúar í
framtíðinni.
Því miður er skrá BIS yfir gamla skáta
mjög ófullkomin þar sem frekar illa hefur
haldist á gömlum skrám. Það eru því
hundruðir eða sennilega þúsundir gamall
skáta sem gjarnan vildu fá Styrktarpinnann
sendan árlega svo ekki sé talað um mál-
gögn hreyfingarinnar, en fá ekki. Hvernig
væri nú að færa það í tal við gömlu skáta-
systkinin hvort þau fái Styrktarpinnann
sendan og hafa svo samband við skrif-
stofu BIS ef svo er ekki og skrá
viðkomandi — því fleiri því betra.
Félagsmálafulltrúi BÍS
Nafn: júlíus Aðalsteinsson.
Aldur: 36 ára.
Fjölskylda: Giftur Helgu Hallgrímsdóttur.
Bifreið: Nissan Sunny 1992.
Skáti: Ægisbúi frá 1967.
Skátaferill: Félagsforingi, ritstjóri og Skátablaðsins og Skáta-
mála, á sæti í foringjaÞjálfunarráði, fararstjóri á
Jamboree auk fjölmargra annarra starfa.
Menn tun: Stúden t frá MH.
Fyrri störf: Starfsmaður Landsbanka Islands.
Umsögn: Seigla er sennilega Það sem einkennir Júlíus mest.
Araraða set íkjörbréfanefnd aðalfundar og skáta-
Þinga sannar Það best. Hefur reynst vel í störfum
fyrir Bandalag íslenskra skáta.
Skátablaðið