Sameiningin - 01.12.1910, Blaðsíða 32
3o8
Af séra Valdemar birtist niynd i „Sam.“ endr fyrir löngu (í
Janúar-blaöinu frá árinu 1891). Með sömu mynd kom seinna Thc
Lutlieran Sunday School Herald i Philadelphia.
Trúboðsstarf.
I. Skýrsla frá hr. Haraldi Sigmar.
Snemma í Maí-mánuði byrjaði eg trúboðsstarf í þjónustu
kirkjufélagsins. Lagöi eg þá undireins á stað vestr til Vatna-
byggðanna í Sask., til þess að starfa bjá Agústínusar-söfnuði og á
nærliggjandi stöðum.
Svo sem um hafði verið samið starfaði eg sem svaraði helming
tímans, er eg var vestr frá, eða vel það, hjá Ágústínusar-söfnuði.
Guðsþjónustur fóru þar fram í Mímis-skólahúsi. Og voru þar
ellefu guðsþjónustur á sumrinu.
Flestar af þeim guðsþjónustum máttu heita vel sóktar og sum-
ar ágætlega, bæði af fólki innan safnaðar og utan. Og var það
gleðiefni mikið, hve góðan þátt yngra fólkið tók í kirkjulegri starf-
semi, ekki síðr en hið eldra.
Sunnudaginn 11. Sept. fermdi eg þar fimm ungmenni, og næsta
sunnudag á eftir fór fram altarisganga fyrir fermingarbörnin, að-
standendr þeirra og þá aðra, er þess óskuðu. Við það tœkifœri
voru 22 til altaris.
Eg gjöri mér beztu vonir um framtíð safnaðar þessa; því mér
virðist, að fólkið þar yfirleitt beri mjög hlýjan hug til málefnis
kristindómsins.
Byggðin í grennd við Candahar, þar sem söfnuðr þessi er, er
að mínum smekk mjög fögr, og allt útlit fyrir, að hún muni verða
fjölmenn og mjög blómleg. Og þótt enn sé hún mjög ung, þá eru
þó framfarirnar þar undraverðar og líðan fólks yfirleitt góð.
Um meðferð á mér er allt hið bezta að segja. Fólkið var
mér einkar gott og alúðlegt. Samvinnan með því var æfinlega hin
œskilegasta, þvi maðr fann, hve fúslega og vel fólkið tók þátt í
starfinu. Og það gladdi mig, hve vel og drengilega utansafnaðar-
fólk var með. Að skilnaði var mér haldin ánœgjuleg samkoma og
gefnar rausnarlegar gjafir. Fyrir allan kærleikann og samúðina
kann eg fólkinu beztu þakkir.
Auk þessa prédikaði eg á ýmsum stöðum í austrhluta Vatna-
byggðar, svo sem við Hóla-pósthús, að Elfros, Mozart, Heklu og
Kristnesi. Allsstaðar voru viðtökurnar hinar ákjósanlegustu, og
er eg fólkinu innilega þakklátr fyrir alla góðgirnina, sem mér var
sýnd.