Litli Bergþór - 01.06.1993, Blaðsíða 14
Hestamannafélagið Logi
Frá firmakeppnis og reiðskólanefnd Loga.
Nefndin stóð fyrir reiðnámskeiði í vetur og byrjaði
það helgina 27.-28. mars.
íþróttanefnd sýndi málinu áhuga og ákveðið var,
að jafnframt því að bjóða uppá námskeið fyrir
byrjendur, yrði æft fyrir íþróttakeppni ef áhugi væri
nægur. Rósmarie í Geldingarholti var fengin til
kennslunnar.
Til gamans er hér útdráttur úr auglýsingu fyrir
námskeiðið:
„Aðaláhersla í námskeiðinu verður íþróttakeppni. Ekki
útilokar það þó byrjendur, því skipt verður í hópa, og er
öruggt að allirfá það sem þeim hentar.
Aœtlað er að námskeiðið taki talsvert langan tíma, svo
það komi jafnt þeim að gagni, sem eru að þjálfa hesta
sína fyrir vetrarmótið og þeim sem œtla að taka þátt í
íþróttamótinu í lok maí n.k.
I samráði við þátttakendur á námskeiðinu verður
ákveðið hvernig tímasetningu námskeiðsins verður háttað
t.d hvort vikanfyrir páskana er hentug þátttakendum eða
hvortfólki hentar betur að vera á námskeiðinu um helgar
nú eða jafnvel virka daga. Allt verður athugað, og reynt
að koma til móts við óskir sem flestra. “
Reyndin varð sú að 21 sótti námskeiðið, þar af
voru 14 krakkar 15 ára og yngri.
Námskeiðið byrjaði með tveimur skiptum helgina
fyrir annað vetrarmótið og varð þannig hvetjandi fyrir
þá sem ekki höfðu tekið þátt í fyrsta vetrarmótinu, að
koma með í annað sinnið. Síðan var ekkert gert í
námskeiðsmálum fyrr en mánuði seinna eða þegar
páskar voru liðnir og annir vegna ferminga. Það var
þannig hugsað, að þeir sem væru með hesta notuðu
tækifærið og færu í páskareiðina til að halda hestum
og mönnum í þjálfun.
Námskeiðið hélt svo áfram helgina fyrir þriðja
vetrarmótið sem var haldið 1. maí. Krakkarnir fengu
samtals 4 tíma í reiðkennslu áður en sjálft mótið fór
fram. Síðan var haldið áfram strax eftir vetrarmótið
og námskeiðinu lokið frá sunnudegi til þriðjudags.
Þeir sem áttu lengra að með hesta sína, nýttu sér
gjarnan að geyma hestana á Torfastöðum enda slíkt
velkomið fyrir alla sem vildu.
Það hefur verið mjög gaman að fylgjast með
þátttakendum námskeiðsins hvernig þeim hefurfarið
fram í reiðmennskunni.
Þetta er annað árið sem vetrarnámskeið er haldið.
Ljóst er að námskeið á veturna á rétt á sér. En
reynslan hefur kennt að ekki er gott að samræma
kennslu fyrir krakka og þá sem lengra eru komnir.
Því legg ég til að haldið verði áfram á sömu braut,
hvað varðar yngri kynslóðina og aðra byrjendur, en
íþróttanefndin sjái sjálf um námskeið fyrir
íþróttakeppnina.
D.K.
Frá íþróttanefnd Umf. Bisk.
✓
Urslit í Héraðsmóti drengja í körfubolta réðust ekkifyrr en í síðasta leik, en Þór, Laugdœlir
og Garpur hlutu jafn mörg stig og því réði stigahlutfall í innbirðis viðureignum þeirra liða
lokastöðunni.
Urslit í Héraðsmóti stúlkna í körfubolta
1. sceti Þór 7-1
2. -Laugdælir 7-1
3. - Garpur 7-1
4. - UBH 5-3
5. - Hamar 3-5
6. - Hrunamenn3-5
7. - Hekla 2-6
8. - Bisk. 1-7
9. - Selfoss 1-7
427-274 14 stig.
495-198 14 -
361-208 14 -
402-258 10 -
217-286 6 -
227-288 6 -
195-415 4 -
188-543 2 -
144-241 2 -.
1. sœti Garpur
2. - Laugdælir
3. - UBH
4. - Hrunamenn
5. - Bisk
4-0 92-56 8 stig.
3-1 126- 68 6 -
2-2 96- 67 4 -
1-3 70-84 2 -
0-4 52-176 0 -.
Litli - Bergþór 14