Litli Bergþór - 01.03.1997, Blaðsíða 7
Hreppsnefndarfréttir
Skýrsla byggingafulltrúa 1996. Kostnaðarhlutur
Biskupstungnahrepps kr. 1.115.767,-
Fundargerð skólanefndar 15. janúar 1997.
Samþykkt að leita eftir því við skólaskrifstofu að hún
skili skýrslu um starf í Reykholtsskóla sem unnið hefur
verið að undanfömu.
Asborg Arnþórsdóttir ferðamálafulltrúi
Biskupstungna kom á fundinn og lagði fram greinargerð
um starf sitt fyrir árið 1996.
Hreppsnefnd Biskupstungahrepps er afar óánægð
með það hvernig fyrrverandi sláturhús S.S. í Laugarási er
smám Saman að grotna niður vegna viðhaldsleysis.
Hreppsnefnd krefst þess að S.S. sjái til þess að þegar í
stað verði gegnið þannig frá húsinu að ekki sé til vansa.
Hreppsnefnd mælir eindregið með því að S.S. leiti allra
leiða til að finna húsinu hlutverk, þannig að í því geti
hafist atvinnustarfsemi.
Lögð voru fram frumdrög að fjárhagsáætlun fyrir 1997.
Hreppsráðsfundur 6. febrúar 1997.
Bréf Foreldrafélags leikskólans Álfaborgar dags. 28.
janúar. Niðurstaða könnunar um leikskólaþörf. Einnig
er í bréfinu farið fram á að bætt verði úr þörf á pössun,
sem er fyrir hendi í sveitarfélaginu. Hreppsráð leggur til
að opnunartími verði sá sami þetta ár og var á s.l. ári
jafnframt óskar hreppsráð eftir skýrslu leikskólanefndar
um fyrirhugað starf leikskólans á næsta skólaári miðað
við húsnæðið eins og það er og þann fjölda bama sem
heimilt er að vista. Hreppsráð leggur til að ekki verði
teknar ákvarðanir um breytingar á húsnæði skólans fyrr
en þessi skýrsla liggur fyrir.
Bréf Gylfa Haraldssonar dags. 18. janúar um
umhverfi sundlaugarinnar innan girðingar.
Samningur um samstarf og stefnumörkun í
ferðaþjónustu milli allra sveitarfélaga í uppsveitum
Árnessýslu og Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands.
Samingurinn hefur verið undirritaður með fyrirvara um
samþykki hreppsnefnda. Hreppsráð leggur til að
samningurinn verði samþykktur.
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, áætlun um framlög
1997.
Fundargerð Atvinnuþróunarsjóðs 24. janúar.
Fundargerðinni fylgja gögn um stofnun Atgeirs ehf.
Fundargerð framkvæmdaráðs Heilbrigðiseftirlits 23.
janúar. Samþykkt að óska eftir að fá frumvarp um
hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit til umsagnar.
Ennfremur samþykkt að óska eftir upplýsingum um
stjómskipulag Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og hvemig
tilnefnt er í svæðisnefnd og framkvæmdaráð eftirlitsins.
Kaupsamningur sumarhúsa á Reykjavöllum (27
lóðir). Ekki tekin afstaða til samninganna þar sem ekki
liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af svæðinu.
Skipulag sumarhúsa á Felli. Nýjar teikningar unnar
eftir bókun hreppsnefndar á fundi 21. janúar lágu
frammi. Skv. teikningunni er gert ráð fyrir 30 lóðum
neðan þjóðvegar en 15 ofan vegar. Hreppsráð leggur til
að aflað verði heimildar til að auglýsa deiliskipulag á
Felli.
Tillaga að endurskoðuðu aðalskipulagi Reykholts
1997 - 2017 lá frammi. Hreppsráð leggur til að aflað
verði heimildar til að auglýsa skipulagið.
Endurskoðun aðalskipulags Laugaráss. Hreppsráð
leggur til að sótt verði um mótframlag Skipulagsstjórnar .
ríkisins til verksins, sem unnið verði á þessu ári.
Gengið var frá drögum að fjárhagsáætlun til fyrri
umræðu.
Hreppsnefndarfundur 11. febrúar 1997.
Rætt var talsvert um skipulag Ióða á Reykjavöllum
og hvort hreppurinn kynni að bera einhverja ábyrgð ef
sölur á landi hefðu þegar farið fram. Auglýsing á
deiliskipulaginu hefur ekki farið fram en oddviti mun
leggja til við skipulag ríkisins að það verði gert hið
fyrsta.
Samþykkt var að unnið verði að endurskoðun á
aðalskipulagi Laugaráss og Skálholts á þessu ári.
Liður 12 í fundargerð hreppsráðs 6/2 1997. Um
endurskoðun á aðalaskipulagi Reykholts. Samþykkt var
að haldinn yrði opinn fundur um skipulagsmál á
auglýsingatíma á endurskoðuðu skipulagi Reykholts og
nágr. og yrðu þá jafnvel kynnt skipulög í nágrenninu um
leið.
Um lið 5 í fg. frá 6/2: Sveinn kynnti samning milli
Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands og allra sveitarfélaga í
uppsveitum Árnessýslu. Sjá bréfabók.
Um skipulagsuppdrátt á Drumboddsstöðum I.
Samþykkt að senda umsagnaraðilum til umsagnar og
síðan yrði leitað eftir því við Skipulag ríkisins að leyfí
fáist til að auglýsa deiliskipulag þessarar
sumarhúsabyggðar.
Kynnt var tillaga að skipulagi á tjaldstæði á
Geysissvæðinu í landi Laugar.
Oddviti lagði fram lóðarblað um sumarhúsalóðir í
Laugarási sem yrðu hjá Teiti og Jónasi. Samþykkt var að
oddviti gengi frá samningum við þá tengdafeðga.
Um skipulagsmál á Iðu II. Oddviti kynnti stöðu mála
vegna kærubréfs sumarhúsalóðar í landi Iðu II. þar sem
kærð er ákvörðun byggingafulltrúa að veita K.B. leyfi til
byggingar á sumarhúsi. Gísli las upp bréf sem sent
verður til umhverfisráðuneytisins frá sveitarstjóm.
Einnig verður óskað eftir því við Skipulag ríkisins að
deiliskipulag í landi Iðu II á svæði II verði staðfest.
Fjárhagsáæltun, fyrri umræða. Farið var yfir
fjárhagsáætlun. það kom fram að komið er loforð frá
Jöfnunarsjóði Sveitarfélaga um kr. 1.000.000,- til að
hefja undirbúning að byggingu íþróttahúss. Samþykkt
var að hækka áætlað framlag til byggingar íþróttarhúss
upp í 1.200.000.- Einnig var samþykkt að
undirbúningsnefnd sem til er að byggingu íþróttahúss
geri einhverjar tillögur um kostnað, byggingarmáta og
annað sem skiptir máli í samráði við oddvita og
endurskoðanda hreppsins. Tillögur þessar skulu vera
komnar til oddvita fyrir seinni umræðu um
fjárhagsáætlun.
Tekið saman af D.K.
Litli - Bergþór 7