Litli Bergþór - 01.03.1997, Síða 25
Ferðamálafulltrúi Biskupstungnahrepps hefur nú
lokið starfsári. Hér verður stiklað á nokkrum
viðfangsefnum ársins og spáð í framtíðina.
Stefnumótunarvinna í ferðamálum er nú forsenda þess að
fjármagn fáist frá hinu opinbera svo það er
forgangsverkefni á hverju svæði. Síðan þarf að
framfylgja stefnumótun og vinna að uppbyggingu,
kynningu og sölu. Þannig þróast viðfangsefnin og
breytast frá ári til árs. Mikilvægt er að kynna sitt svæði
sem víðast, gæta hagsmuna þess, vera sýnilegur
þátttakandi í atburðum tengdum ferðamálum og leitast
við að hafa áhrif á gang mála.
Samstarf á landsvísu
Ferðamálafulltrúarar víða um land eiga gott samstarf
innan Ferðamálasamtaka Islands (FSÍ) og sækja
samráðsfundi þar reglulega. Á sl. ári voru haldnir nokkrir
samráðsfundir og voru umfjöllunarefni þeirra af ýmsum
toga, hér á eftir fara nokkur dæmi: Fjallað var um
markaðskönnun meðal ferðamanna, flokkun gististaða,
fjárframlög Byggðastofnunar. Ráðgjöf í ferðaþjónustu.
fyrirkomulag ferðasýninga, samskipti við fjölmiðla og
átaksverkefni. Á fundi í nóvember var rætt um hlutverk
og verkefni FSI og ferðamálasamtaka landshlutanna.
Fulltrúar allra landshlutasamtaka kynntu skipulag og
verkefni á hverjum stað. Einnig var rætt um lagalegt
umhverfi ferðaþjónustunnar, en verið er að endurskoða
lög um skipan ferðamála urn þessar rnundir. Á aðalfundi
FSI í Viðey í vor tóku ferðamálafulltrúar þátt í
hringborðsumræðum með Magnúsi Magnússyni og
Roger Croft frá SNH (ferðamálaráði) í Skotlandi.
Tveir vinnuhópar ferðamálafulltrúa voru starfandi
innan FSI framan af árinu sem fjölluðu um
upplýsingamiðlun, útgáfu og kynningarmál ásamt
lengingu ferðamannatímans, annars vegar, og um
umhverfismál tengdferðaþjónustu hins vegar. Sótt var
um fjárveitingu til Fjárlaganefndar Alþingis og styrk til
Byggðastofnunar. Greinargerðir liggja fyrir um þetta
starf.
Ráðstefnur
Þátttaka í ráðstefnum er mikilvæg og oft upphaf
frekari samvinnu. Mikilvægt er að afla upplýsinga,
kynna svæði og mynda tengsl sem síðar verða að
viðskiptum. Ferðamálafulltrúi tók þátt í nokkrum slíkum
á árinu, má þar m.a. nefna:
Ráðstefnu um græna ferðamennsku sem haldin var af
nýju ferðaþjónustufyrirtæki. Árlega ráðstefnu
Ferðamálaráðs sem haldin var á Suðurnesjum í október.
Yfirskrift ráðstefnunnar var að þessu sinni
Orlítið um
ferðamál
Ferðaþjónusta og menning. Málþing um Hagnýtt gildi
rannsókna íferðaþjónustu. þar var meðal annars fjallað
um rannsóknir sem grundvöll stefnumótunar í
ferðamálum og hlutverk rannsókna í uppbyggingu
ferðaþjónustu á íslandi. þær upplysingar nytast í okkar
vinnu hér.
Ferðamálafulltrúar voru boðaðir af
Samgönguráðuneyti á ráðstefnu á Hótel Loftleiðum í
maí, þar sem stefnumótun í ferðamálum fyrir landið í
heild var kynnt.
Einnig voru þeir boðaðir af Umhverfisráðuneyti og
FSI á ráðstefnu um Ferðaþjónustu ísátt við umhverfið í
Brœðurnir Ingvar og Haukur í Bergholti, Loftur á
Lambabrún, Gísli í Kjarnholtum og Stefán í
Miðholti við vörðuna á Bláfellshálsi.
maí. Ráðstefna var haldin á vegum Ferðamálaráðs og
Skipulags ríkisins um skipulag og nýtingu hálendis
Islands. I framhaldi af því var haldinn kynningafundur í
Aratungu í júní. Ymis gögn frá ofangreindum og fleiri
ráðstefnum eru fyrirliggjandi ef einhver hefur áhuga á að
kynna sér þau nánar.
Upplýsingamiðlun og kynningarmál
Ferðamálafulltrúi skipulagði þjónustunámskeið fyrir
starfsfólk í ferðaþjónustu í Biskupstungum. Var það
haldið í Aratungu 20.júní og mæltist vel fyrir. Alls sóttu
námskeiðið um 20 manns víðs vegar að úr sveitinni,
fyrirlesari var Jón Þorvaldsson kynningarráðgjafi. I vor
er fyrirhugað að halda annað þjónustunámskeið hér í
tengslum við Menningar- og fræðslusamband alþýðu.
það námskeið verður stærra í sniðum og komið verður
inn á fleiri þætti. Sótt hefur verið um styrk úr
Litli - Bergþór 25