Litli Bergþór - 01.03.2003, Blaðsíða 14

Litli Bergþór - 01.03.2003, Blaðsíða 14
Hreppsnefndarfréttir sveitarstjómar Bláskógabyggðar og ábendingar Skipulagsstofnunar. Eftirfarandi erindi eru lögð fram til kynningar: Afrit af beiðni Bláskógabyggðar um gjafsókn vegna málareksturs Þjóðlendumála fyrir dómstólum. Bréf frá félagsmálaráðuneytinu dags. 22. janúar 2003 þar sem Bláskógabyggð er veittur frestur til 25. febrúar 2003 til að skila fjárhagsáætlun sveitar- félagsins til ráðuneytisins. Lokaskýrsla um gerð skógarstíga fyrir hreyfi- hamlaða í Haukadalsskógi. Bréf frá Stúdentaráði KHÍ dags. 4. febrúar 2003 þar sem varað er við hugsanlegum breytingum á skólahaldi á leikskóla- og grunnskólastigi. Bréf frá framkvæmdastjórn Bandalags ís- lenskra sérskólanema dags. 4. febrúar 2003 þar sem varað er við hugsanlegum breytingum á skólahaldi á leikskóla- og grunnskólastigi. Bréf frá Fræðsluneti Suðurlands dags. 3. febrúar 2003 þar sem boðið er til ráðstefnu um „uppbyggingu hátæknisamfélags á landsbyggðinni - á leið til nýsköpunar“. Bréf frá Héraðsnefnd Árnessýslu dags. I. febrúar 2003 um fyrirkomulag og kostnaðar- skiptingu búfjáreftirlits. 12. fundur sveitarstjórnar 25. febrúar. Mætt voru: Sveitarstjórn Sveinn A. Sæland oddviti setti fund og bauð velkomna, Olaf Helga Kjartansson, sýslumann á Selfossi og Þröst Brynjólfsson yfirlögregluþjón sem komu sem gestir inná fundinn og kynntu áherslu- atriði í löggæslu- og almannavarnarmálum. Lögðu þeir fram minnispunkta til umræðu þar sem þeir kynntu m.a. samskipti lögreglu og sveitarfélaga, for- varnir og barnaverndarmálefni, almannavamir, málefni útlendinga, lausagöngu búfjár, sumarhúsa- svæði og fleira. Tilgangur fundarins var að koma á beinum tengslum milli lögreglu og sveitarstjórnar og ræða sameiginleg hagsmunamál. Fjölmargar fyrir- spurnir voru lagðar fyrir gestina m.a. vegna brunavarna, skráningar á bústöðum þannig að auðveldara verði að finna þá m.a. vegna sjúkra- flutninga, Gjábakkavegar, forvarna- og barnavern- darmála auk lausagöngu búfjár. Fræðslumál. Ákvörðun um framtíðarsýn í grunnskólamálum Bláskógabyggðar. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að fara að tillögum fræðslunefndar að því leyti að Reykholtsskóli og Grunnskólinn á Laugarvatni verði einn skóli eins fljótt og auðið er. Lagt er til að sameinaður skóli fái nafnið Grunnskóli Bláskógabyggðar. Oddvita er falið að ræða við núverandi skólastjórnendur um áframhaldandi störf í þágu sveitarfélagsins. Boðað verði til fundar með starfsfólki grunnskólanna í næstu viku og þeim kynntar fyrirhugaðar breytingar. Bókun T-listans: T-listinn fagnar þeirri ákvörðun sem nú liggur fyrir um grunnskólann enda er ákvörðun í samræmi við stefnu listans í fræðslumálun Bláskógabyggðar. Fjárhagsáætlun Bláskógabyggðar 2003, síðari umræðu frestað til næsta fundar. Umræða um fjárhagsáætlun veitna í eigu sveitarfélagsins, Biskupstungnaveitu og Hitaveitu Laugarvatns. Kjartan lagði fram eigin fjárhagsáætlun Hitaveitu Laugarvatns en samkvæmt henni er gert ráð fyrir að afkoman sé mun betri en veitunefnd gerði ráð fyrir. Síðari umræða um fjárhagsáætlun veitnanna verður á næsta fundi sveitarstjórnar 4. mars n.k. Þriggja ára fjárhagsáætlun Bláskógabyggðar 2004-2006, fyrri umræða. Samþykkt að vísa fjárhagsáætluninni til síðari umræðu 4. mars n.k. Prókúruumboð sveitarsjóðs. Sveinn A. Sæland oddviti og Margeir Ingólfsson formaður byggðaráðs munu fara tímabundið með prókúruumboð sveitar- félagins eða frá 1. mars - 31. ágúst 2003. Frá sama tíma fellur niður prókúruumboð Ragnars S. Ragnarssonar en það endurnýjast 1. september 2003. Umræður um íbúaskrá. Bókun Kjartans. Kjartan bendir á að starfsfólk sveitarfélagsins hefur ekki allt fært lögheimili sitt í sveitarfélagið og vill leiðrétta þann misskiling sem fram kom á sveitar- fundinum 10. feb. s.l. að aðeins tvö börn í grunn- skólanum og eitt í leikskólanum hefðu ekki lögheimili í Bláskógabyggð. Hið sanna er að 8 böm eru í leikskólanum á Laugarvatni án lögheimilis og einnig sækja 4 börn grunnskólann án lögheimilis í sveitarfélaginu. Bókun sveitarstjóra. Sveitarstjóri hefur í samvinnu við skólastjómendur á Laugar- vatni, foreldra, námsmenn og aðra sem dvelja tímabundið vegna náms eða starfa, unnið að því, að viðkomandi lögheimilissveitarfélög greiði fyrir námsdvöl viðkomandi barna. Böm verða ekki vistuð í skóla sveitarfélagsins framvegis nema búið sé að ganga frá staðfestingu viðkomandi sveitar- félags um greiðslur. Fyrirspurn frá T listanum. Samþykkt var á sveitarstjómarfundi 12. des. s.l. að auglýsa nýsam- þykktar reglur um hundahald í Bláskógabyggð í næstu Bláskógafréttum. Þrátt fyrir samþykki sveitarstjómar birtust reglurnar ekki í janúarhefti Bláskógafrétta. Hvað veldur því? Svar formanns byggðaráðs: Reglugerð um hundahald í Bláskógabyggð hefur verið send ráðuneyti til staðfestingar. Staðfesting hefur ekki borist og því ekki hægt að auglýsa reglugerðina. Erindisbréf - áskorun. Drífa beinir því til meirihluta sveitarstjómar að halda áfram vinnu við gerð erindsbréfa fyrir nefndir sveitarfélagsins. Brýnt er að m.a. veitunefnd fái erindisbréf sem fyrst, í ljósi þess að sveitarstjórn samþykkir aukin Litli Bergþór 14

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.