Foreldrablaðið - 01.11.1959, Blaðsíða 7
**-K-kd<-kd<-k-K-K-K-k-K-k-K-><-K-k-k-k-k-K-k-K-K
Steinar Þorfinnsson er fœddur aS Bitru í Hraun-
geröishreppi, Árnessýslu, 12. maí 1922. Hann
lauk prófi frá Kennaraskóla íslands voriS 1948
og hefur síöan veri8 kennari vi8 Melaskólann
í Reykjavík. Steinar er mikill áhugamaSur um
skólamál og félagsmál kennara. Hann hefur
veri8 formaSur Stéttarfélags barnakennara í
Reykjavík sí&an ári8 1956.
-k*-k-k-k**-*-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k*-k-k-k-k-k-k
— Með hvaða hætti telurðu, að for-
eldrar gætu orðið skólastarfinu.að meira
liði en nú er?
— Starfandi þurfa að vera foreldra-
félög við alla barnaskólana í Reykjavík,
sem vinni í nánum tengslum við starfs-
lið hvers skóla. Síðan þyrfti að sameina
krafta allra þessara félaga í eins konar
samband reykvíkskra foreldrafélaga,
sem ynni á breiðari grundvelli að al-
hliða úrbótum á starfsskilyrðum skól-
anna. Kennarastéttin hefur um áratugi
barizt fyrir umbótum á skóla- og upp-
eldismálum, en kröfum hennar hefur
enn ekki verið sinnt nema að nokkru
leyti. Það er orðið tímabært, að for-
eldrar komi hér til liðs við kennara-
stéttina. Fjölmenn og vel skipulögð
foreldrasamtök gætu að mínum dómi
haft úrslitaáhrif á framgang þessara
mála.
Það er ekki hægt að gera börn góð með því að gera þau hamingjusöm, en það er hægt
að gera þau hamingjusöm með því að gera þau góð. — E. K.
FORELDRABLAÐIÐ 5