Foreldrablaðið - 01.11.1959, Page 21

Foreldrablaðið - 01.11.1959, Page 21
%1m l^íLiódígáfíi siámólóha Samkvœmt lögum er til þess œtlazt, aö börnum á skólaskyldualdri sé séö fyrir ókeypis námsbókum. Ríkisútgáfa námsbóka hefur þessa starfsemi meö höndum, og sneri ,,Foreldrablaöiö“ sér til framkvœmdastjóra hennar, Jóns Emils Guöjónssonar, í þeim tilgangi aö forvitnast um, hvaö þar væri helzt á döfinni. — Hvenœr var Ríkisútgáfa námsbóka stofnuð? — tJtgáfan var stofnuð árið 1937, samkvæmt lögum, er Alþingi hafði sett árið áður. — Hver eru helztu verkefni ríkisút- gáfunnar? Höfuðverkefni hennar er að sjálf- sögðu útgáfa hinna eiginlegu kennslu- bóka. Ríkisútgáfan sér börnum, sem eru við skyldunám (7—13 ára), fyrir ókeypis námsbókum. f lögum um ríkis- útgáfuna frá 1956 er einnig gert ráð fyrir, að unglingar við skyldunám (13 —15 ára) fái ókeypis námsbækur. Þetta lagaákvæði hefur þó enn ekki verið framkvæmt nema að nokkru leyti. Tvo aðra starfsþætti útgáfunnar vil ég einnig nefna: ÍJtgáfu hjálparbóka og hjálpargagna fyrir skólana og útvegun ýmiss konar kennsluhandbóka og skóla- vara. Sem dæmi um hið fyrrnefnda má nefna stafsetningarorðabók, sem sér- staklega er ætluð til skólanotkunar, byrjendabók í reikningi, vinnukort í landafræði og myndir úr fslandssögu og náttúrufræði, ætlaðar til að lima í vinnubækur. — ÞiS starfrœkiS skólavörubúS. HvaS um starfsemi hennar? — Starfstími skólavörubúðarinnar er enn svo skammur, að ég get lítið um hana sagt. Starfsemi hennar byggist á lánsfé, og er sú undirstaða að sjálfsögðu ekki traust. Það er líka að ýmsu leyti erfitt að reka verzlun, sem eingöngu miðar starfsemi sína við skóla og skóla- nemendur. T. d. eru skipti við hana eðlilega mjög árstíðabundin, a. m. k. 4 mánuði ársins er sala svo að segja engin. — Hvernig gengur meS íslenzku kortabókina? — Ég geri mér vonir um, að hún komi út fyrir lok næsta árs, en get þó ekki fullyrt, að svo verði. — ÞiS voruS aS senda í skólana nýja kennslubók í stafsetningu. Viltu segja okkur, i hvaSa aldursflokkum er œtlazt til aS hún sé notuS? — Ætlazt er til, að bókin verði afhent 10 (eða 11) ára börnum og síðan notuð til bamaprófs. Ríkisútgáfunni er heim- ilt að gefa út tvær námsbækur í sömu grein, þannig að skólarnir geti valið um bækur. tJtgáfa þessarar nýju bókar stefnir í þá átt. Áður hefur verið gefin út bókin „Stafsetning og stílagerð“. Að gefnu tilefni skal þess getið, að nem- endur geta einungis fengið aðra bókina ókeypis. FORELDRABLAÐIÐ 19

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.