Landneminn - 01.12.1951, Blaðsíða 17

Landneminn - 01.12.1951, Blaðsíða 17
A einfaldan og glöggan hátt er eðli tjóðfclagsátnkanna útskýrt í Þessarl grein — Um hina almennu kteppu kapítalismans Frá upphafi vega hafa orðið margar og miklar breyt- ingar á skipan þjóðfélagsins. Maðurinn sjálfur er höf- undur þess. Hann hefur verið að skapa það síðan hann vék af þróunarbraut dýranna, — og hann mun halda áfram að skapa það. Venjulega er talað um fimm meginþróunarstig í sögu mannkynsins. Fyrst frumkommúnismann, sem var rkjandi með öllu fólki í mörg þúsund ár. Þá þrœla- skipulagið, sem var stéttaþjóðfélag — hið fyrsta í sögu mannkynsins. Næst kom lénsskipulagið, sem var við líði um allar miðaldir. Svo kom auðvaldsskipulagið, kapitalisminn, sem enn er ríkjandi í miklum hluta heirns sem kunnugt er. Hið fimmta er sósíalistiska þjóðskipulagið — og er þar stéttlaust þjóðskipulag aft- ur komið til sögunnar. Undirrót þess, að eitt form þjóðskipulagsins byggir annað út, er að framleiðsluöflin þ. e. maðurinn sjálf- ur, framleiðslutækin, tæknin og skipulagningin þróast í sífellu. Þegar svo er komið, að þau samsvara ekki ríkjandi formi þjóðfélagsins, þá tekur nýtt form við. Með iðnaðarbyltingunni í Englandi á árunum 1770 — 1830 nær kapitalisminn yfirtökunum þar í landi og svo í hverju landinu á fætur öðru. Á síðari hlula síð- ustu aldar verður kapitalisminn ríkjandi skipulag um víða veröld. Eftir því sem liinum voldugustu af kajjitalistiskp ríkjunum óx fiskur um hrygg — eftir því harðnaði sam- keppnin þeirra í milli — imperialisminn kemur fram á sjónarsviðið. Hvað er imperialismi? Imperialisminn er það stig í þróun kapitalismans þar sem einokunarauðvaldið, stórkostlegar auðsamsteypur og auðhringar ráða lögum og lofum í atvinnu- og fjár- málalífi hinna kapitalistisku þjóða. En jafnframt því að tákna þetta sérstaka ástand hins kapitalistiska þjóð- skipulags þá er imperialisminn einnig sérstök nólitisk Eftir HAUK HELGASON stefna auðvaldsríkjanna, sem sé baráttan um heimsyf- irráðin, barátta auðvaldsríkjanna fyrir að halda ný- lendum sínum og áhrifasvæðum undir oki sínu. Vorið 1916 ritaði Lenin bók sína um imperialismann. í þessari bók sýndi hann fram á, að með imperialisman- um væri hástigi auðvaldsþróunarinnar náð, hann lýsti imperialismanum sem dauðamarki kapitalismans og færði jafnframt rök að því, að tímabil hans væri undir- búningsskeið verkalýðsbyllingarinnar. Auðsamsteyp- urnar og auðhringarnir myndu arðræna í ríkari mæli en áður og í sívaxandi mæli. Að sarna skapi myndi byltingarhugur verkalýðsins magnast um heim allan. Kröfur nýlenduþjóðanna og annarra undirokaðra þjóða um frelsi og sjálfstæði yrðu æ háværari. Allar innri mótsagnir kapitalismans yrðu harðsnúnari. Lenin sýndi fram á í bók sinni að af baráttunni um markaði fyrir framleiðsluvörur og útflutningsauðmagn, baráttunni um nýlendur og hráefnasvæði hlyti að leiða stórveldastyrjaldir, sem háðar yrðu á nokkurra ára fresti með það fyrir augum að skipta nýlendunum og áhifasvæðunum upp á nýjan leik. Heimsstyrjöldin 1914.—18 var einmitt slík imp- erialistisk styrjöld. Hún var bein afleiðing þess, að heiminum hafði þegar verið skipt upp undir hand- leiðslu fárra imperialistiskra ríkja (t. d. Bretlands og Frakklands), en önnur imperialistisk ríki ( t. d. Þýzkaland) þóttust afskipt, — vildu meiri nýlendur, meiri áhrifasvæði. Hin almenna kreppa kapitalismans — kreppa sjálfs kapitalistiska þjóðskipulagsins — hófst með þessari styrjöld. Aðaleinkenni hinnar almennu kreppu er að kapital- isminn er ekki lengur hið eina og altæka þjóðskipulag, heldur hefur þjóðfélagskerfi sósíalismans komið til sögunnar. Með byltingu bolsjevika í Rússlandi haust- ið 1917 brutust þjóðir á einum sjötta hluta veraldarinn- LANDNEMINN 111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Landneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.