Landneminn - 01.12.1951, Qupperneq 24
Alþýóuhernum íagnað. Tréskurðarmynd eftir Tsjá Ye.
„Vökumaður, hvað líður
Eítir James Endicott dómprófast
nóttinni?“
( NiSurlag.)
Ég staðhæfi: Kristin kirkja getur tekið höndum sam-
an við þessa ríkisstjórn um framkvæmd þeirra mála, er
hún ber fyrir brjósti, án þess að fórna nokkrum grund-
vallaratriðum kristinnar trúar. Mér dettur ekki í hug að
leggja hendur í skaut og segja: „Ég get ekki unnið með
þér, af því að þú ert yfirlýstur kommúnisti.“ Að minnsta
kosti get ég það ekki á neinum kristnum forsendum.
Það þyrftu þá að vera einhverjar aðrar forsendur.
Þér munið hvað lærisveinar Krists sögðu á sínum
tíma: „Vér heyrðum mann prédika í þínu nafni, og
vér bönnuðum honum það, þar sem hann er ekki í okk-
ar hópi.“ Og Jesús sagði, „Bannið það engum, því að sá
sem ekki er á móti mér, hann er með mér.“ Og ef Krist-
ur er hinn sami og hann var á dögum holdsvistar sinn-
ar, en því geri ég ráð fyrir að þér trúið öll, og að hann
sé hinn sami í gær, í dag og um aldir, þá lætur hann
sig líka miklu skipta þá hluti, sem ég hef gert hér að
umræðuefni.
Miskunnsami Samverjinn.
Vér megum ekki gleyma sögunni um miskunnsama
Samverjann, eða hvað finnst yður? Og það var Jesús
sjálfur, sem sagði hana, og lýsti öllu af aðdáunarlegri
nákvæmni. Hann sagði frá manni, sem átti leið frá
Jerúsalem til Jeríkó og féll í hendur ræningjum. sem
skildu við hann nær dauða en lífi, og þá gerðist þessi
undursamlegi atburður. Tveir þjónar Guðs, hvor eftir
annan fóru þarna fram hjá, án þess að hafast nokkuð
að honum til bjargar. Svo kom maður, sem ekki var
rétttrúaður — Samverji, sem játaði guðlastanlega trú,
að dómi rétttrúaðra manna á þeim dögum. Og hann
kom til mannsins og sá eymd hans og hrærðist til með-
aumkvunar. Hann steig af eik sínum, hlúði að sárum
mannsins og setti hann á bak, því að hann sá að hann
þarfnaðist frekari hjálpar. Svo fór hann með hann til
gistihúss og borgaði þar fyrir þjónustu við hann. En
morguninn eftir var særði maðurinn enn ekki orðinn
sjálfbjarga. Svo að Samverjinn greiddi þá fé handa
honum fyrir fram og sagði: „Sé enn fjárvant, þá skal
ég greiða það, er ég kem til baka. Veitið hjúkrun manni
þessum.“
Getið þér hugsað yður Jesús «vo mælandi: „Hvað
118 LANDNEMINN