Landneminn - 01.12.1951, Qupperneq 46

Landneminn - 01.12.1951, Qupperneq 46
„How much?“ Rœða ílutt á fundi Sósíalistaflokksins i Listamannaskálanum 2. desember 1951. Ég heyrði nýlega eftirtektarverða sögu. Það var einn laugardag í fyrravet- ur, að bílstjóri nokkur fékk pöntun að koma og taka farþega í tilteknu húsi hér í bænum. Þetta reyndist vera einn farþegi, ung stúlka, 16—17 ára gömul; hún var klædd í skíðabún- ing, og hafði skíðin um öxl, kvaddi foreldra sína á tröppunum með inni- legum kossi, sem sé fyrirmyndar dóttir, og kom útí bílinn. Bílstjórinn ók eftir tilvísun stúlk- unnar að öðru húsi, tók þar annan farþega, aðra skíðabúna stúlku sem kvaddi foreldra sína með kossi á tröppunum, aðra fyrirmyndar dótt- ur. Síðan var farið að þriðia hús- inu og þangað sótt þriðja stúlkan. í bílinn voru sem sé komnar þrjár fyrirmyndar dætur foreldra sinna, útbúnar með allt sem til þurfti að njóta fjallaloftsins við hollar íþrótt- ir yfir helgina. Bílstjórinn átti von á að næst yrði sér falið að aka nið- ur í bæinn, þangað sem áætlunar- bílar mundu líklega bíða þess að flytja þær vinkonurnar í hópi skóla- systkyna sinna eða á vegum einhvers æskulýðsfélags uppá Hellishe''ði. En það þurfti að koma við á enn ein- um stað uppi í bænum. Og á þess- um stað beið enginn nýr farþegi eftir bílnum, heldur fóru nú þeir for- þegar, sem fyrir voru, stúlkurnar þrjár, út úr bílnum og inn í húsið — og tóku með sér skíðin. Eftir nokkra stund komu þær svo sftur, og höfðu í millitíðinni haft fata- skipti, skilið skíðabúningana eftir inni í húsinu, en voru í staðinn klæddar einsog til að fara á ball. Þær flýttu sér inní hílinn. fengu sér sæti og gáfu bílstjóranum stutta en ákveðna skipun: „Suðrá Keflavíkurflugvöll.1' Bílstjóranum þóttu að vonum grunsamleg nokkuð þessi snöggn um- skipti frá skíðaferð uppá Ijöll í greinilegt samkvæmisferðalag suður með sjó, en hann hugsaði sem svo að einkamál þessara farþega einsog annara væru sér óviðkomandi, og ók suður. Þau komu á flugvöllinn í m'Tkri. Bílstjórinn stanzaði á tilteknur.i stað eftir öruggri tilvísur. stúlkn- anna Þær fóru úr bílnum, báðu h.'tnn að hinkra svolítið við, og hurfu útí myrkrið. Eftir fáein augnablik birt- ist dökkt og skuggalegt og ófrítl and- lit við gluggann hjá bílstjóranrm; þetta var auðsæilega roskinn maður, og hann spurði dimmum rómi: „How much?“ Bílstjórinn reiknaði út hvað ferðin hingað suðreftir hefði kostað; Am- eríkaninn borgaði, og hvarf síðan útí myrkrið aftur. — Bílstjórinn ók í bæinn, — og er þá þessi saga ekki lengri. En því er ég að segja ykkur hana? Til þess liggja aðallega tvær á- stæður. Hin fyrri er sú, að mér virðist þessi saga mjög svo táknræn um það á- stand sem ríkjandi er milli eldri kyn- slóðarinnar og þeirrar yngri hér í höfuðstaðnum. Því að sannleikurinn er sá, að eldri kynslóðin hefur litla sem enga hugmynd um það, hvernig sú yngri ver tómstundum sínum. (Mest kveður þó auðvitað að þessu varðandi unglinga á hinum mikla þroskaaldri frá fermingu til tvítugs). Ótrúlega mikill fjöldi foreldza er alls óvitandi um gerðir barna sinna, þegar þau hafa lokað á eftir sér dyr- um heimilisins, og eru gengin útí kvöldið. Og séu börnin spurð, þá er hægurinn fyrir þau að segja eitthvað allt annað en sannleikann, gömlu hjónin grunar hvort sem erekki neitt, auk þess sem eftirgrennslanir mundu varla bera mikinn árangur einsog öllu er nú orðið háttað hér í borg- inni. Þessi vísindi heita á máli Reykjavíkurunglinga: að plata sveita manninn. Yngri kynslóðin leikur það einsog henni sýnist að blekkja eldri kynslóðina, plata sveitamann- inn. Og sveitamaðurinn heldur áfram að láta plata sig. — Ég segi ekki, að fyrirbæri þetta sé alveg nýtt í sögu Reykjavíkur. Það gat sosum komið fyrir á gamla daga líka, að sveitamaðurinn væri plataður. Til dæmis skal það fúslega viðurkennt um sjálfan mig, að ég gekk í bófafé- lag hér vestrá Sólvöllunum eitt sinn fyrir tæpum tuttugu árum, auðvitað án vitundar þeirra sem vildu halda mér á vegi dyggðarinnar. Mark- mið félagsins var að brjótast inní sælgætissöluna á íþróttavellini’m og tryggja þannig meðlimum sínum 140 LANDNEMINN

x

Landneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.